- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Færeyingar á HM karla í fyrsta sinn

Færeyingar verða í fyrsta skipti með á heimsmeistaramóti karla í handknattleik á næsta ári. Þeir innsigluðu þátttöku sína með sigri á Bosníu í kvöld í þjóðarhöllinni í Þórshöfn, 33:28. Færeyingar unnu einnig fyrri viðureignina sem fram fór í Bosníu...

Anton Gylfi og Jónas eru síður en svo komnir í sumarleyfi

Handknattleiksdómararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson eru síður en svo komnir í sumarfrí frá dómgæslu. Þeir eru komnir til Veszprém í Ungverjalandi þar sem þeirra bíður það vandasama verk að dæma síðari viðureign grannþjóðanna, Ungverja og Serba, í...

Ihor var sagt upp – veit ekki hvað tekur við

Handknattleiksmaðurinn Ihor Kopyshynskyi er án samnings eftir að Afturelding sagði upp samningi sínum við hann í lok leiktíðar. Frá þessu er greint á Handkastinu. Ihor, sem er 35 ára gamall fékk íslenskan ríkisborgararétt fyrir ári, segist um þessar mundir...

Lokahóf: Systkinin stóðu upp úr Vestmannaeyjum

Systkinin Sandra Erlingsdóttir og Andri Erlingsson voru valin bestu leikmenn meistaraflokksliðs ÍBV í lokahófi handknattleiksdeildar sem fram fór í gærkvöld. Eyjafréttir segja frá. Alexandra Ósk Viktorsdóttir og Elís Þór Aðalsteinsson fengu fréttabikarana, sem efnilegustu leikmenn ÍBV. Birna Berg Haraldsdóttir...
- Auglýsing-

Markadrottningin skrifar undir tveggja ára samning

Katrín Helga Davíðsdóttir, kjölfesta handknattleiksliðs Aftureldingar á undangengnum árum, hefur samþykkt nýjan tveggja ára samning við félagið. Samningurinn gildir út leiktíðina vorið 2028. Katrín Helga varð markadrottning Grill 66-deildarinnar á nýliðnu keppnistímabili. Hún skoraði 204 mörk í 21 leik...

Lokahóf: Ída Margrét og Antoine Óskar best hjá Gróttu

Á miðvikudaginn fór fram lokahóf Handknattleiksdeildar Gróttu þar sem meistaraflokkar félagsins, þjálfarar, sjálfboðaliðar og starfsfólk kom saman og gerði upp tímabilið. Lokahófið var haldið í hátíðarsal félagsins í Hertz-höllinni.Veittar voru viðurkenningar til þeirra sem sköruðu fram úr í vetur. Meistaraflokkur...

Sara verður áfram á Ásvöllum

Sænska handknattleikskonan Sara Odden hefur framlengt samning sinn við Hauka. Sara hefur verið ein traustasta stoð Haukaliðsins undanfarin ár. Hún gekk fyrst til liðs við Hauka haustið 2019 og lék með liðinu í 3 ár. Sara reyndi hún fyrir...

Molakaffi: Stemning í Færeyjum, tómahljóð er víða, Cupic

Uppselt er á viðureign Færeyinga og Bosníumanna í undankeppni HM karla sem fram fer í þjóðarhöll Færeyinga í Þórshöfn í kvöld. Flautað verður til leiks klukkan 18. Vel á fjórða þúsund Færeyinga tryggðu sér aðgöngumiða. Síðustu miðarnir seldust í...
- Auglýsing-

Tveggja ára samningur Daníels Karls við Stjörnuna

Daníel Karl Gunnarsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Stjörnuna. Daníel Karl er vinstri hornamaður auk þess að geta brugðið sér í allra kvikinda líki þegar kemur að varnarleik. Daníel Karl er uppalinn á Selfossi en hefur undanfarin...

Alfreð varð að játa sig sigraðan í Kaupmannahöfn

Þýska landsliðið, undir stjórn Alfreðs Gíslasonar, tapaði með átta marka mun fyrir Evrópumeisturum Danmerkur, 36:28, í vináttulandsleik í Royal Arena í Kaupmannahöfn í kvöld. Danir, sem eru kampakátir með úrslitin, höfðu átta marka forskot þegar fyrri hálfleikur var að...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19413 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -