- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Færeyingar á HM karla í fyrsta sinn

- Auglýsing -

Færeyingar verða í fyrsta skipti með á heimsmeistaramóti karla í handknattleik á næsta ári. Þeir innsigluðu þátttöku sína með sigri á Bosníu í kvöld í þjóðarhöllinni í Þórshöfn, 33:28. Færeyingar unnu einnig fyrri viðureignina sem fram fór í Bosníu á fimmtudaginn, 24:22, og vinna þar með samanlagt, 57:50.

Bosníumenn voru tveimur mörkum yfir í hálfleik í Þórshöfn í kvöld, 17:15. Varnarleikur Færeyinga batnaði til muna í síðari hálfleik sem varð til þess að liðið jafnaði fljótlega metin og var komið með tveggja marka forskot, 24:22, þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Bosníumenn fundu ekki taktinn á nýjan leik. Með frábærum stuðningi á fjórða þúsund áhorfenda brutu Færeyingar Bosníumenn jafnt og þétt á bak aftur og unnu frábæran sigur.


Færeyska landsliðið hefur nærri því að komast á tvö síðustu heimsmeistaramót. Að þessu sinni gekk allt upp þótt öflugasta handknattleiksmann landsins, Elias Ellefsen á Skipagøtur, hafi vantað í báða leikina í umspilinu.

Eins og í fyrri viðureigninni þá var hornamaðurinn Hákun West af Teigum markahæstur hjá Færeyingum með 11 mörk. Óli Mittún skoraði sex mörk og þeir Leivur Mortensen, Vilhelm Poulsen og Teis Horn skoruðu fjögur mörk hver.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -