Katrín Helga Davíðsdóttir, kjölfesta handknattleiksliðs Aftureldingar á undangengnum árum, hefur samþykkt nýjan tveggja ára samning við félagið. Samningurinn gildir út leiktíðina vorið 2028.
Katrín Helga varð markadrottning Grill 66-deildarinnar á nýliðnu keppnistímabili. Hún skoraði 204 mörk í 21 leik eða 9,7 mörk að meðaltali. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Katrín Helga leikið 171 leik fyrir meistaraflokk félagsins og skorað í þeim 693 mörk.
„Katrín Helga er uppalin hjá Aftureldingu og því er það gríðarlega ánægjulegt að hún hafi ákveðið að taka slaginn með okkur áfram og vilji taka þátt í þeirri vegferð sem er fram undan.
Við erum gífurlega stolt af því að Katrín hafi ákveðið að framlengja við uppeldisfélagið en það undirstrikar líka metnaðinn okkar fyrir komandi tímabil,“ segir í tilkynningu Aftureldingar.



