- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Sanngjörn niðurstaða í skemmtun í KA-heimilinu

KA og ÍBV fengu sín fyrstu stig er þau skiptu á milli sín stigunum tveimur sem voru í boði í KA-heimilinu í viðureign liðanna í 2. umferð Olísdeildar karla í handknattleik í dag, 35:35. Einar Rafn Eiðsson skoraði 12....

Martha hefur ákveðið að láta gott heita

Hin þrautreynda handknattleikskona Martha Hermannsdóttir mun vera hætt keppni í handknattleik og skórnir góðu komnir upp á hillu. Svo segir Akureyri.net í dag og víst er að Martha lék ekki með KA/Þór gegn ÍBV í Vestmannaeyjum í dag í...

ÍBV vann í sveiflukenndum leik

ÍBV vann þegar upp var staðið nauman sigur á KA/Þór í 1. umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik í Vestmannaeyjum í dag, 28:27, eftir að hafa verið marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 14:13. Um tíma í síðari hálfleik náði...

Dagskráin: Umferðunum lýkur norðan heiða og sunnan

Fyrstu umferð Olísdeildar kvenna lýkur í dag með tveimur leikjum, öðrum í Vestmannaeyjum og hinum í Kópavogi. Einnig verður í dag leidd til lykta önnur umferð Olísdeildar karla í þegar ÍBV leikur sinn fyrsta leik í deildinni á tímabilinu...
- Auglýsing-

Molakaffi: Berta, Andrea, Aldís, Ásdís, Bjarni, Tryggvi, Guðmundur, Einar, Roland

Berta Rut Harðardóttir og samherjar hennar í Holstebro fylgdu í gær eftir góðum sigri í 1. umferð dönsku 1. deildarinnar í handknattleik með öðrum sigurleik í annarri umferð í gærkvöld. Að þessu sinni vann Holstebro lið Søndermarkens, 32:26. Berta...

Ákveðnir Harðarmenn – jafnt að Varmá – úrslit og markaskor kvöldsins

Hörður á Ísafirði hóf keppni í Olísdeild karla með sóma í kvöld þegar liðið sótti þrefalda ríkjandi meistara Vals heim í Origohöllina. Eftir erfiðan fyrri hálfleik þegar leikmenn nýliðanna voru haldnir sviðskrekk þá sóttu þeir í sig veðrið í...

Valur hóf mótið á stórsigri

Valur vann öruggan sigur á Haukum, 37:22, í fyrsta leik liðanna í Olísdeild kvenna í handknattleik í Origohöllinni í kvöld. Því miður var leikurinn aldrei spennandi, slíkir voru yfirburðir Valsliðsins sem hafði níu marka forskot að loknum fyrri hálfleik,...

Leikjavakt: Áfram haldið í annarri umferð

Tveir leikir fara fram í kvöld í annarri umferð Olísdeildar karla í handknattleik. Kl. 19.40: Afturelding - FH.Kl. 20.15: Valur - Hörður. Um er að ræða fyrsta leik Harðar frá Ísafirði í efstu deild í handknattleik karla. Handbolti.is verður á leikjavakt...
- Auglýsing-

Ásdís Þóra er gjaldgeng með nýliðum Selfoss

Ágústa Þóra Ágústsdóttir hefur verið lánuð til nýliða Selfoss frá Val og verður gjaldgeng með Selfossliðinu á morgun þegar það sækir HK heim í Kórinn í 1. umferð Olísdeildarinnar. Ásdís Þóra hefur síðustu daga æft með Selfossliðinu og líkað...

Sjö skrifa undir samninga við HK

Sjö ungar handknattleikskonur hafa skrifað undir tveggja ára samninga við handknattleiksdeild HK. Allar hafa þær leikið upp yngri flokka Kópavogsliðsins og áttu sæti í 3. flokksliðinu sem varð Íslandsmeistari í vor eftir hörkuleik við Hauka í úrslitum, 31:25. Sjömenningarnir eru...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19331 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -