- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Hnífjafnt á toppnum – úrslitaleikur á þriðjudaginn?

ÍR og Selfoss unnu viðureignir sínar á útivelli í kvöld í Grill66-deild kvenna. Er nú svo komið að aðeins er eins stigs munur á liðunum í tveimur efstu sætunum. ÍR er með 29 stig og er stigi á undan...

Fjölnir gefur ekkert eftir í kapphlaupinu

Fjölnismenn ætla sér að vera áfram með í baráttunni um efsta sæti Grill66-deildar karla í handknattleik. Þeir undirstrikuðu það síðast í kvöld með því að leggja ungmennalið Vals örugglega á heimavelli í Dalhúsum, 36:29. Fjölnisliðið var einnig með sjö...

Valsarar fóru með bæði stigin úr Dalhúsum

Ungmennalið Vals vann Fjölni/Fylki með þriggja marka mun, 27:24, í Grill66-deild kvenna í handknatteik í Dalhúsum í kvöld. Valsliðið var tveimur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 13:11. Svo er að sjá samkvæmt leikskýrslu að Anna Úrsúla Guðmundsdóttir hafi reimað...

Afmá öll merki um stærsta styrktaraðila Meistaradeildarinnar

Merki rússneska flutningafyrirtækisins Delo Group verður fjarlægt af öllum keppnisbúningum liða í Meistaradeild Evrópu í þeim leikjum sem framundan eru. Um leið verður Meistaradeildin ekki lengur tengt við fyrirtækið. Á undanförnum árum hefur keppnin verið nefnd Delo Meistaradeild kvenna...
- Auglýsing-

Erna Guðlaug heldur áfram með Fram

Handknattleikskonan efnilega, Erna Guðlaug Gunnarsdóttir, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Fram. Erna Guðlaug hefur verður burðarás í ungmennaliði síðustu ár en hefur verið í vaxandi hlutverki í Olísdeildarliði Fram á yfirstandandi keppnistímabili og tekið þátt í...

Ásbjörn þarf að herða róðurinn til að ná Valdimar

Valdimar Grímsson er markahæsti leikmaður efstu deildar karla í handknattleik frá upphafi vega. Valdimar, sem lék lengst af með Val en einnig KA, HK, Stjörnunni og Selfoss skoraði 1.903 mörk samkvæmt samantekt Óskars Ófeigs Jónassonar blaðamanns og tölfræðings sem...

Tveir framlengja samninga sína við HK

Hjörtur Ingi Halldórsson og markvörðurinn Sigurjón Guðmundsson hafa skrifað undir nýja samninga við handknattleikslið HK. Nýr samningu Hjartar Inga er til tveggja ára. Sigurjón gekk frá þriggja ára samningi við Kópavogsliðið sem leikið hefur í Olísdeildinni á leiktíðinni. Hjörtur kom...

Dagskráin: Efstu liðin verða í eldlínunni

Eftir mikla leikjatörn á Íslandsmótinu í handknattleik, karla og kvenna, í gærkvöld með 10 leikjum í fjórum deildum þá verður aðeins slegið af í kvöld. Fimm leikir standa fyrir dyrum í Grill66-deildum karla og kvenna. Tvö af þremur efstu liðum...
- Auglýsing-

Volda gefur ekki þumlung eftir

Halldór Stefán Haraldsson og liðsmenn hans í Volda gefa ekkert eftir í toppbaráttu norsku 1. deildar kvenna í handknattleik. Volda vann lið Reistad í Reistad Arena í gærkvöld með minnsta mun, 27:26, í hörkuleik. Reistadliðið var marki yfir í...

HK fór með fjögur stig frá Eyjum

HK fór með fjögur stig frá Vestmannaeyjum í gærkvöld eftir tvær viðureignir við ÍBV. Eins og kom fram á handbolti.is í gærkvöld þá vann HK leik liðanna í Olísdeild kvenna. Ungmennalið HK fylgdi sigrinum eftir og lagði ungmennalið ÍBV,...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
18194 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -