Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Þjálfari Íslendinga greinist með Covid19

Jürgen Schweikardt, þjálfari þýska handknattleiksliðsins Stuttgart, hefur greinst með kórónuveiruna eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá félaginu í morgun. Hann fékk niðurstöðu úr prófi á mánudag en mun hafa gengist undir það á laugardag. Tveir íslenskir handknattleiksmenn...

Halldór lánaður frá Haukum

Örvhenti hornamaðurinn Halldór Ingi Jónasson hefur verið lánaður til Aftureldingar frá Haukum, næstu tvo mánuði. Þetta hefur handbolti.is eftir heimildum. Halldór Ingi, sem er nýlega stiginn upp úr meiðslum, á að fylla skarð Guðmundar Árna Ólafssonar sem fingurbrotnaði á dögunum...

Héðan og þaðan: Enterríos framlengdi – Hansen fór heim

Spænska stórstjarnan Raúl Enterríos ákvað að framlengja samning sinn við Barcelona um eitt ár. Enterrios er orðinn 39 ára gamall. Danski landsliðsmaðurinn René Toft Hansen flutti heim til Danmerkur í sumar og skrifaði undir þriggja ára samning við Bjerringbro/Silkeborg á...

Loksins byrjað á Spáni

Spænska 1.deildin í handknattleik karla hófst loksins í gærkvöldi, nærri vikur síðar en gert var ráð fyrir, en ný uppspretta kórónuveirunnar hefur sett strik í reikninginn víða þar í landi. Upphaflega stóð til að flauta til leiks á fimmtudaginn...
- Auglýsing-

Andstæðingar Vals unnu bikarinn- myndband

Rincón Fertilidad Málaga, liðið sem Valur mætir í Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik eftir rúman mánuð varð á sunnudaginn spænskur bikarmeistari í handknattleik. Rincón Fertilidad Málaga vann BM Elche Visistelche, 24:20, í úrslitaleik. Ef frá eru skildar upphafsmínúturnar þá...

Botninn datt úr í síðari

Elvar Örn Jónsson var besti maður Skjern-liðsins þegar það mátti þola tap á heimavelli í kvöld fyrir spræku liði Skanderborg, 31:28, í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Elvar Örn skoraði sjö mörk í níu skotum og átti auk þess þrjár...

Danir venda kvæði sínu í kross

Danska handknattleikssambandið hefur horfið frá þeim áformum sínum að ekki verði krýndir bikarmeistarar í handknattleik karla þetta árið. Til stóð að leika til úrslita í vor en því síðan slegið á frest þegar kórónaveiran lék mjög lausum hala ...

Íslendingaslagur framundan

Það verður boðið upp á Íslendingaslag í annarri umferð Evrópudeildarinnar í handknattleik karla þegar TTH Holstebro frá Danmörku, sem Óðinn Þór Ríkharðsson  leikur með, mætir þýska liðinu Rhein-Neckar Löwen. Með Löwen leika landsliðsmennirnir Alexander Petersson og Ýmir Örn Gíslason. ...
- Auglýsing-

Markadrottningin fer út í læknisnám

Ragnheiður Tómasdóttir vinstri hornamaður FH og markahæsti leikmaður liðsins á síðasta tímabili leikur ekki með FH í Olísdeildinni sem hefst á föstudaginn. Þetta staðfesti Jakob Lárusson í samtali við handbolta.is í dag. Ragnheiður er að fara til Slóvakíu í læknisnám....

Bergur Elí hættur – Goto án leikheimildar

Hægri hornamaðurinn Bergur Elí Rúnarsson hefur lagt skónna til hliðar og hefur ákveðið að leika ekki með Gróttu í Olísdeildinni í vetur. Hann tilkynnti þjálfarateyminu þetta í lok ágúst. Bergur Elí gekk í raðir Gróttu frá Fjölni fyrir tímabilið en þar...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 til 2019. Stofnaði handbolti.is árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 164 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
12601 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -