- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Einum leik frestað fram á mánudagskvöld

Viðureign FH og Stjörnunnar í 16-liða úrslitum Coca Cola-bikarkeppni kvenna sem fram átti að fara annað kvöld í Kaplakrika hefur verið fresta vegna covidsmita. Þetta kemur fram í tilkynningu frá mótanefnd HSÍ. Leikurinn hefur verið settur á dagskrá á mánudagskvöldið...

Ekki fengið nei frá EHF – uppgjör EM í byrjun mars

Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri Handknattleikssambands Íslands, segir að uppgjör af hálfu Handknattleikssambands Evrópu, EHF, vegna Evrópumóts karla í síðasta mánuði munu ekki liggja fyrir fyrr en upp úr næstu mánaðarmótum. Um leið skýrist hver endanlegur kostnaður HSÍ verður vegna...

Dagskráin: Fimm spennandi bikarleikir

Fimm leikir verða í kvöld í 16-liða úrslitum Coca Cola-bikarkeppni karla í handknattleik. Víst er a.m.k. þrjú lið úr Olísdeild karla heltast úr lestinni að loknum viðureignum kvöldsins. Fyrsti leikurinn hefst klukkan 18 og verður á milli Stjörnunnar og KA....

Molakaffi: Díana Dögg, Andrea, Þórhildur, Jóhanna, Elvar, Alexander, Bergur, Lacrabère

Ekkert verður af því að Díana Dögg Magnúsdóttir og samherjar í BSV Sachsen Zwickau mæti Thüringer í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld. Smit kórónuveiru hefur á ný stungið sér niður í herbúðir BSV Sachsen Zwickau eftir því...
- Auglýsing-

Á ýmsu gekk hjá Íslendingum – Evrópudeildin: úrslit og staðan

Bjarki Már Elísson var markahæstur leikmanna Lemgo með níu mörk þegar liðið tapaði með fimm marka mun fyrir Benfica í viðureign liðanna í Evrópudeildinni í handknattleik, C-riðli, í Lissabon í kvöld. Eftir jafna stöðu í hálfleik, 15:15, brást vörn...

Fram er komið í átta liða úrslit

Fram komst í kvöld í átta liða úrslit í Coca Cola-bikar kvenna í handknattleik með því að vinna Víking, 36:23, í Víkinni í 16-liða úrslitum. Framarar mæta annað hvort ÍR eða Gróttu í átta liða úrslitum. Hvort liðið það...

Fyrirliðinn heldur ótrauður áfram

Pálmi Fannar Sigurðsson, fyrirliði Olísdeildarliðs HK, hefur skrifað undir þriggja ára áframhaldandi samning við félagið eftir því sem greint er frá í tilkynningu. Hann er annar leikmaður liðsins á jafnmörgum dögum sem ákveður að verða um kyrrt í herbúðum...

Stór gluggi sem opnast hjá Elverum

„Að komast til Elverum er stór gluggi sem getur opnað fleiri möguleika fyrir mann,“ sagði Aron Dagur Pálsson við handbolta.is í dag eftir að tilkynnt var að hann hafi skrifað undir samning um að leika með norska meistaraliðinu Elverum...
- Auglýsing-

Covid setur strik í reikning bikarkeppninnar

Vegna covid smita hefur reynst nauðsynlegt að færa leik Harðar og FH í 16-liða úrslitum Coca Cola-bikar karla í handknattleik sem til stóð að færi fram í íþróttahúsinu Torfnesi annað kvöld. Ákveðið hefur verið að freista þess að liðin mætist...

Gaman að mæta aftur á völlinn

Handknattleiksmaðurinn Sverrir Pálsson og leikmaður Selfoss lék sinn fyrsta leik í Olísdeildinni í nærri tvö ár á sunnudagskvöldið þegar hann tók þátt í leik Selfoss og Hauka í Set-höllinni á Selfossi. Síðasti leikur hans á fjölum Set-hallarinnar var 22....

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
18229 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -