Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Lokaumferðin – úrslit, markaskorarar, lokastaðan

Síðasta umferð Olísdeildar karla í handknattleik fór fram í kvöld. Stóru tíðindin eru að Valur varð deildarmeistari og Fram komst í úrslitakeppnina sem áttunda lið. Afturelding situr eftir. Ljóst var fyrir umferðina að Grótta væri einnig úr leik í...

Valur deildarmeistari – Fram sendi Aftureldingu í sumarfrí

Valur varð í kvöld deildarmeistari í Olísdeild karla eftir stórsigur á Selfossi, 38:26, í Sethöllinni á Selfossi. Fram náði áttunda og síðasta sætinu inn í úrslitakeppnina með þriggja marka sigri á Aftureldingu, 26:23, á Varmá. Afturelding er þar með komin...

„Erum mjög stolt af árangrinum“

„Okkur hefur gengið ofsalega vel og við erum mjög stolt af árangrinum,“ sagði Svavar Vignisson þjálfari Selfossliðsins sem vann Grill66-deild kvenna og fékk sigurlaun sín afhent í dag að loknum síðasta leiknum í deildinni. Selfoss leikur þar með í...

Leikjavakt: Lokaumferð Olísdeildar – nötrandi spenna

Síðasta umferð Olísdeildar karla í handknattleik fer fram í kvöld. Allar viðureignir hefjast klukkan 18. Í leikslok liggur fyrir hvaða lið verður deildarmeistari og hvaða átta lið taka þátt í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla sem hefst...
- Auglýsing-

Sigurgleði hjá Selfsyssingum innan vallar sem utan

Selfoss fékk í dag afhent sigurlaunin í Grill66-deild kvenna að loknum sigri á ungmennaliði Vals í Origohöllinni í lokaumferð deildarinnar, 36:21. Selfoss tekur sæti Aftureldingar í Olísdeild kvenna í haust. Fjölmennur hópur stuðningsmanna Selfossliðsins mætti á leikinn í Origohöllinni og...

Gísli Þorgeir mætti sprækur til leiks

Gísli Þorgeir Kristjánsson fór á kostum í dag þegar SC Magdeburg treysti stöðu sína í efsta sæti þýsku 1. deildarinnar í handknattleik með þriggja marka sigri á Wetzlar á útivelli, 29:26. Gísli Þorgeir fékk högg á vinstra lærið í leik...

ÍR-ingar heiðra einn sinn tryggasta sjálfboðaliða

Sjálfboðaliðar eru kjölfesta í starfi íþróttafélaga og margir starfa árum saman fyrir félagið sitt af hugsjón, ánægju og gleði. Án sjálfboðaliða væri starfsemi margra félaga harla fátækleg. Einn dugmikilla sjálfboðaliða innan handboltafjölskyldunnar er ÍR-ingurinn Loftur Bergmann Hauksson. Hann fagnaði á...

Olísdeild karla: Spenna á toppi og botni – lokadansinn stiginn

Lokaumferð Olísdeildar karla verður leikin í kvöld. Allir leikir hefjast klukkan 18. Valur stendur best að vígi í keppninni um deildarmeistaratitilinn. Valsmenn sækja Selfyssinga heima. Haukar lifa í voninni. Þeir taka á móti FH-ingum og verða að vinna og um...
- Auglýsing-

Grilll 66-deild kvenna: Selfoss-liðið fær sigurlaunin afhent

Síðasta umferð í Grill66-deild kvenna fer fram í dag með fimm leikjum. Lið Selfoss innsiglaði sigur í deildinni á dögunum og þar með sæti í Olísdeild kvenna á næsta keppnistímabili. Selfoss sækir ungmennalið Vals heim í lokaumferðinni. Að leikslokum...

Molakaffi: Stefán, Bjarni Ófeigur, Díana Dögg, Arnar Birkir, Sveinbjörn, Aron, Orri, Viktor, Óskar, Madsen

Stefán Arnarson þjálfari kvennaliðs Fram varð í gær deildarmeistari í handknattleik í sjöunda sinn sem þjálfari. Stefán var þjálfari Vals í fjögur skipti þegar liðið vann deildarmeistaratitilinn í handknattleik kvenna á síðasta áratug. Stefán hefur tvisvar stýrt Fram til...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18961 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -