Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Leikjavakt: Hver er staðan?

Þrír leikir fara fram á Íslandsmótinu í handknattleik í kvöld, meistaraflokkum. Íslandsmeistarar KA/Þórs taka á móti ÍBV í Olísdeild kvenna klukkan 18. Á sama tíma hefja FH og ÍBV leik í Kaplakrika í Olísdeild karla. Klukkustund síðar leiða Þórsarar...

Tinna Sigurrós hefur verið atkvæðamest – þessar hafa skorað flest mörk

Selfyssingurinn og unglingalandsliðskonan Tinna Sigurrós Traustadóttir er markahæst í Grill66-deild kvenna þegar líða fer að lokum keppni í deildinni. Hún hefur skoraði 136 mörk í 16 leikjum, eða að jafnaði 8,5 mörk í leik með efsta liði Grill66-deildarinnar. Auður...

Myndskeið: „Konungur Íslands er hér“

Stórbrotin frammistaða landsliðsmarkvarðarins Viktors Gísla Hallgrímssonar með GOG í gær í sigurleiknum á Bidasoa Irun, 30:28, í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í handknatteik hefur víða vakið mikla athygli. Handknattleikssamband Evrópu deildi myndskeiðum frá leiknum með yfirskriftinni...

Tvær frá Íslandi kallaðar inn í færeyska landsliðið

Tvær færeyskar handknattleikskonur sem leika hér á landi hafa verið valdar í A-landsliðið sem tekur þátt í tveimur síðustu leikjum landsliðsins í undankeppni Evrópumótsins 20. og 23. apríl. Færeyingar mæta landsliðum Rúmena og Dana. Fyrri viðureignin verður í...
- Auglýsing-

Hefur ekki bitið úr nálinni af afleiðingum byltu

Hornamaðurinn Leó Snær Pétursson hefur verið fjarri góðu gamni í síðustu leikjum Stjörnunnar í Olísdeild karla. Hann hlaut slæma byltu á æfingu fyrir um hálfum mánuði með þeim afleiðigum að þungt högg kom á bakið. Leó Snær hefur ekki...

Dagskráin: Uppsópsdagur hjá mótanefnd

Í kvöld er komið að því að hreinsa upp eftir keppnistímabilið, þ.e. taka til við leiki sem hefur orðið að fresta fyrr á tímabilinu. Stundum kallaðir uppsópsdagur hjá mótanefnd HSÍ. Kvennalið ÍBV í Olísdeildinni og karlalið Þórs á Akureyri hafa...

Molakaffi: Viktor Gísli, Tollbring, Ómar Ingi, Gísli Þorgeir, Grimsbø, Böhm

Viktor Gísli Hallgrímsson fór hamförum í marki GOG í gærkvöld þegar liðið vann Bidasoa, 30:28, í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í handknattleik karla. Leikið var á Spáni. Viktor Gísli reið svo sannarlega baggamuninn fyrir GOG með...

Tryggvi Garðar markahæstur einu sinni sem oftar

Einu sinni sem oftar var Tryggvi Garðar Jónsson allt í öllu hjá ungmennaliði Vals í kvöld þegar það vann ungmennalið Hauka, 28:25, í Grill66-deild karla í handknattleik. Leikurinn fór fram í Origohöll Valsara á Hlíðarenda. Tryggvi Garðar skoraði níu mörk...
- Auglýsing-

Þorgeir Bjarki snýr aftur heim

Hægri hornamaðurinn, Þorgeir Bjarki Davíðsson, hefur skrifað undir tveggja ára samning við Gróttu og gengur til liðs við félagið að þessu leiktímabili loknu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Gróttu í kvöld. Þorgeir Bjarki er að ljúka sínu öðru...

Verðskuldað hjá Selfoss og efsta sætið er í höfn

Selfossliðið komst í efsta sæti Grill66-deildar kvenna í kvöld með sex marka sigri á ÍR í Austurbergi í uppgjöri tveggja efstu liða deildarinnar, 32:26. Selfoss hefur þar með 30 stig eftir 17 leiki en ÍR og FH 29. ÍR...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18952 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -