- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ekki vafi á Selfossi

Selfoss vann öruggan sigur á Gróttu, 32:23, í lokaleik 6. umferð Olísdeildar karla í handknattleik í Sethöllinni á Selfossi í kvöld. Selfossliðið er þar með komið upp í áttunda sæti deildarinnar og fór upp fyrir KA sem féll niður...

Viggó og Andri Már voru í aðalhlutverki

Viggó Kristjánsson og Andri Már Rúnarsson fóru fyrir liði Stuttgart í kvöld þegar liðið vann Erlangen með fimm mark mun, 32:27, á útivelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld. Viggó skoraði sjö mörk í 11 skotum og...

Hetjuleg barátta nægði ekki

A-landslið kvenna tapaði með fimm marka mun fyrir norska B-landsliðinu í handknattleik í fyrstu umferð á æfingamóti í Cheb í Tékklandi í kvöld, 30:25. Norska liðið var tveimur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 16:14. Viðureignin var jöfn fyrsta stundarfjórðunginn...

„Svekkjandi fyrir okkur öll“

„Frammistaðan var svekkjandi fyrir okkur öll. Við náðum okkur því miður ekki á strik að þessu sinni sama hvar á er litið,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari U18 ára landsliðs kvenna við handbolta.is eftir 11 mark tap fyrir Serbum,...
- Auglýsing-

Stórt tap í úrslitaleiknum

Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, tapaði illa fyrir Serbum í úrslitaleik undankeppni Evrópumótsins í Belgrad í kvöld, 31:20, eftir að hafa verið átta mörkum undir að loknum fyrri hálfleik, 15:7.Slæmur upphafskafli setti strik...

Stórleikur Söru Sifjar dugði ekki í Cheb

B-landslið Íslands í handknattleik tapaði með fimm marka mun fyrir norska landsliðinu á æfingamóti í Cheb í Tékklandi í dag, 25:20, eftir að hafa verið sex mörkum undir að loknum fyrri hálfleik, 14:8. Ísland byrjaði leikinn vel í dag og...

Með spelku á baugfingri

Handknattleiksmaðurinn Sigtryggur Daði Rúnarsson og liðsmaður ÍBV meiddist á baugfingri í viðureign ÍBV og Selfoss á sunnudaginn. Af þeim sökum var hann ekki með ÍBV í gær þegar liðið sótti Stjörnuna heim og vann með fjögurra marka mun, 32:28,...

Ekki er von á fyrirliðanum fyrr en eftir áramótin

Ljóst er að fyrirliði Stjörnunnar, Tandri Már Konráðsson, leikur ekkert með liðinu fyrr en á næsta ári. Tandri Már staðfesti þetta við handbolta.is í gærkvöld en hann hefur ekkert leikið með Stjörnuliðinu síðan í september. Tandri Már meiddist á...
- Auglýsing-

U18: Úrslitaleikur í dag – myndir

Íslensku stúlkurnar í U18 ára landsliðinu leika í dag úrslitaleik við landslið Serbíu í undankeppni Evrópumótsins í handknattleik. Leikurinn hefst klukkan 17 og fer fram í Sportski Centar "Vozdovac" í Belgrad. Sigurlið leiksins tryggir sér keppnisrétt í A-keppni Evrópumótsins...

Dagskráin: Binda enda á Selfossi – þrír landsleikir

Í gærkvöld lauk 2. umferð Olísdeildar karla í handknattleik með viðureign Stjörnunnar og ÍBV í TM-höllinni og í kvöld verður bundinn endi á 6. umferð deildarinnar þegar Grótta sækir Selfoss heim í Sethöllina á Selfossi. Leiknum var frestað í...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Netfang: [email protected]
18624 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -