- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Forseti Íslands heiðraði landsliðið með nærveru sinni

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, heiðraði íslenska landsliðið í handknattleik karla með nærveru sinni og stuðningi þegar leikið var við Dani á Evrópumeistaramótinu í handknattleik í MVM Dome í Búdapest í gær. Guðni er mikill íþróttaáhugamaður fyrir utan að hafa...

Ótrúlega stoltur af þessu tækifæri

„Tilfinningin var frábær að taka þátt í leik gegn heimsmeisturunum í milliriðlakeppni á Evrópumóti. Sviðið verður ekki mikið stærra. Það er heiður fyrir mig að fá tækifæri til þess að leika fyrir íslensku þjóðina við þessar aðstæður,“ sagði Orri...

Myndasyrpa: Fjölmennir og hressir Íslendingar í stúkunni

Íslendingar létu til sín taka utan vallar sem innan í MVM Dome í Búdapest í gærkvöld þegar landslið Íslands og Danmerkur mættust í fyrstu umferð milliriðlakeppni Evrópumótsins í handknattleik. Stuðningsmenn íslenska landsliðsins voru áberandi í keppnishöllinni. Fjölmennur hópur kom beint...

Molakaffi: Aron, Møllgaard, Svartfellingar, Króatar, Erlingur, Cañellas

Aron Kristjánsson og liðsmenn hans í Barein unnu þriðja leik sinn í röð afar auðveldlega á Asíumótinu í handknattleik í gær. Barein vann landslið Hong Kong, 46:20. Framundan er keppni í milliriðlum þar sem Bareinar verða í riðli með...
- Auglýsing-

Súrt og svekkjandi að tapa

„Súrt og svekkjandi að tapa leiknum,“ sagði fyrirliðinn Ýmir Örn Gíslason þegar handbolti.is hitti hann að máli eftir fjögurra marka tap íslenska landsliðsins fyrir Dönum í MVM Dome í Búdapest í kvöld í fyrstu umferð milliriðlakeppni Evrópumótsins í handknattleik...

Myndasyrpa: Ísland – Danmörk, 24:28

Íslenska landsliðið í handknattleik karla reyndi hvað það gat að berjast við heimsmeistara Dana í fyrstu umferð milliriðlakeppni Evrópumótsins í handknattleik karla í MVM Dome í Búdapest í kvöld. Sex leikmenn íslenska landsliðsins heltust úr lestinni í gærkvöld og...

Fjórtánmenningarnir gerðu hvað þeir gátu

Vængbrotið og ungt íslenskt landslið veitti tvöföldum heimsmeisturum Dana verðuga keppni í fyrstu umferð milliriðlakeppni Evrópumóts karla í handknattleik í kvöld. Danska liðið vann með fjögurra marka mun, 28:24, eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik, 17:14. Danir...

Fjölnismenn gefa ekki þumlung eftir

Fjölnir komst í kvöld upp að hlið ÍR og Harðar með 18 stig í Grill66-deild karla í handknattleik með öruggum sigri á Kórdrengjum, 30:20, í Dalhúsum í Grafarvogi. ÍR, Hörður og Fjölnir eru jöfn að stigum í þremur efstu...
- Auglýsing-

Ýmir Örn tekur stöðu Arons

Ýmir Örn Gíslason verður fyrirliði íslenska landsliðsins gegn Dönum í kvöld í leik þjóðanna á Evrópumeistaramótinu í handknattleik. Hann tekur við fyrirliðabandinu af Aron Pálmarssyni sem kominn er í sóttkví eins og fimm aðrir leikmenn landsliðsins. Þetta er fyrsta sinn...

Tveir bætast í EM-hópinn

Valsararnir Magnús Óli Magnússon og Vignir Stefánsson koma til Búdapest á morgun og bætast í íslenska landsliðshópinn í handknattleik. Hríðfækkað hefur leikhæfum mönnum í landsliðshópnum á síðasta sólarhring. Þrír hafa greinst jákvæðir í dag og aðrir þrír dag. Er svo...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19313 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -