- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ýmir Örn tekur stöðu Arons

Ýmir Örn Gíslason verður fyrirliði íslenska landsliðsins í kvöld gegn Dönum. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Ýmir Örn Gíslason verður fyrirliði íslenska landsliðsins gegn Dönum í kvöld í leik þjóðanna á Evrópumeistaramótinu í handknattleik. Hann tekur við fyrirliðabandinu af Aron Pálmarssyni sem kominn er í sóttkví eins og fimm aðrir leikmenn landsliðsins.


Þetta er fyrsta sinn sem Ýmir Örn er fyrirliði A-landsliðsins. Hann er 24 ára gamall leikmaður Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi. Ýmir Örn gekk til liðs við Rhein-Neckar Löwen frá Val í febrúar 2020, skömmu eftir Evrópmótið í Svíþjóð.

Viðureignin í kvöld verður 56. landsleikur Ýmis Arnar.

Leikur Íslands og Danmerkur hefst klukkan 19.30.


Leikmannahópur Íslands gegn Dönum:
Ágúst Elí Björgvinsson, KIF Kolding (41/1).
Viktor Gísli Hallgrímsson, GOG Håndbold (28/1).

Aðrir leikmenn:
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (66/76).
Daníel Þór Ingason, Bailingen-Weilstetten (34/9).
Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach (16/17).
Elvar Ásgeirsson, Nancy (0/0).
Janus Daði Smárason, Frisch Auf Göppingen (52/69).
Kristján Örn Kristjánsson, Pays d´Aix Universite Club (14/18).
Orri Freyr Þorkelsson, Elverum (4/1).
Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (59/165).
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Vive Tauron Kielce (42/104).
Teitur Örn Einarsson, SG Flensburg-Handewitt (22/22).
Viggó Kristjánsson, TVB 1898 Stuttgart (24/59).
Ýmir Örn Gíslason, Die Rhein-Neckar Löwen (55/27).



Utan hóps í kvöld eru eftirtaldir leikmenn:
Aron Pálmarsson, Aalborg Håndbold (155/605).
Bjarki Már Elísson, TBV Lemgo Lippe (85/244).
Björgvin Páll Gústavsson, Valur (239/16).
Elvar Örn Jónsson, MT Melsungen (49/124).
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (35/63).
Ólafur Andrés Guðmundsson, Montpellier Handball (136/268).

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -