- Auglýsing -
- Auglýsing -

Myndasyrpa: Fjölmennir og hressir Íslendingar í stúkunni

Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Íslendingar létu til sín taka utan vallar sem innan í MVM Dome í Búdapest í gærkvöld þegar landslið Íslands og Danmerkur mættust í fyrstu umferð milliriðlakeppni Evrópumótsins í handknattleik.


Stuðningsmenn íslenska landsliðsins voru áberandi í keppnishöllinni. Fjölmennur hópur kom beint frá Íslandi í gærdag í sólarhringsferð til að hvetja strákana okkar til dáða. Enn er einnig í borginni talsvert margir Íslendingar sem hafa fylgt liðinu eftir frá fyrsta leik. Sem endranær létu þeir vel í sér heyra allan leikinn og settu fyrir vikið sterkan svip á umgjörð viðureignarinnar en alls voru rétt liðlega 5.000 áhorfendur í höllinni.


Ljósmyndarinn Hafliði Breiðfjörð hafði auga á stuðningsmönnum íslenska landsliðsins á meðan leikurinn stóð yfir. Hluti þeirra mynda sem hann náði birtast hér fyrir neðan.

Um leið er minnt á fyrri syrpur Hafliða frá EM2022: Ferðasaganæfing í keppnishöllinniupphitun stuðningsmannaÍsland – Portúgal 28:24StórkostlegirÍsland – Holland 29:28Stuðningurinn, Létt á æfinguÍsland – Ungverjaland 31:30Stemningin í stúkunni, Ísland – Danmörk, 24:28.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -