- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Magnaður sigur hjá Bjarka Má og félögum – komnir í úrslitaleik

Bjarki Már Elísson og samherjar í Lemgo og tókst það sem fáir reiknuðu með að þeim tækist þegar þeir unnu magnaðan sigur á Kiel, 29:28, í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar í Hamborg í dag. Bjarki Már var markahæstur leikmanna Lemgo...

Elvar Örn á eitt af mörkum ársins

Elvar Örn Jónsson á eitt af mörkum ársins hjá danska úrvalsdeildarliðinu Skjern. Fimm bestu eða mikilvægustu mörk liðsins á keppnistímabilsinu hafa verið valin af stjórnendum félagsins og er nú hægt að kjósa á milli þeirra á heimasíðu félagsins. Sigurmark...

Sigvaldi Björn og Haukur meistarar í Póllandi

Sigvaldi Björn Guðjónsson og Haukur Þrastarson urðu í gærkvöld pólskir meistarar í handknattleik með liði sínu Łomża Vive Kielce. Liðið tryggði sér pólska meistaratitilinn í átjánda sinn með sigri á SPR Stal Mielec, 33:24, á útivelli í 25. umferð...

Tveir framlengja hjá HK

Júlíus Flosason og Davíð Elí Heimisson hafa báðir samið til tveggja ára við Handknattleiksdeild HK. Báðir léku þeir með HK í Grill 66-deildinni í haust, vetur og í vor en HK-liðið vann deildina á dögunum og leikur í Olísdeildinni...
- Auglýsing-

Aníta Björk verður áfram í Eyjum

Aníta Björk Valgeirsdóttir og handknattleiksdeild ÍBV hafa náð samkomulagi og hefur Aníta skrifað undir nýjan tveggja ára samning.Aníta er ungur og efnilegur leikmaður sem hefur leikið lykilhlutverk í 3. flokki félagsins og sömuleiðis verið í leikmannahópnum hjá meistaraflokki kvenna. „Við...

Dagskráin: Leikið til þrautar á tvennum vígstöðvum í Hafnarfirði

Tveir leikir í síðari umferð átta liða úrslita Olísdeildar karla í handknattleik fara fram í kvöld. Báðir leikir verða í Hafnarfirði. FH-ingar taka á móti ÍBV í Kaplakrika klukkan 18. Fyrri viðureign liðanna í átta liða úrslitum lauk með...

Frítt í hópferð frá Akureyri á úrslitaleik

Forsvarsmenn KA/Þórs eru ekkert að tvínóna þessa dagana enda stendur lið þeirra og deildarmeistarar í eldlínunni í úrslitakeppninni í handknattleik kvenna. Þeir bjóða upp á fría rútuferð frá KA-heimilinu á sunndagsmorgun suður til Reykjavíkur á annan leik Vals og...

Myndaveisla: Söglegur sigur í sögulegum leik í KA-heimilinu

KA/Þór braut blað í sögu sinni í gær og varð fyrsta liðið frá Akureyri til þess að leika úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna. Deildarmeistarar KA/Þórs gerði sér lítið fyrir og gerði gott betur en að taka þátt í...
- Auglýsing-

Tilnefndur þriðja mánuðinn í röð

Þriðja mánuðinn í röð er Ómar Ingi Magnússon, landsliðsmaður og leikmaður SC Magdeburg tilnefndur í kjöri á leikmanni mánaðarins í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Ómar Ingi hefur leikið einstaklega vel með SC Magdeburg á keppnistímabilinu en þó verið alveg...

Molakaffi: Arnar, Sveinbjörn, Horak, Groot, Kramer

Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði fimm mörk í sjö skotum og átti tvær stoðsendingar þegar EHV Aue gerði jafntefli á útivelli við Hamm-Westfalen, 27:27, í þýsku 2. deildinni í gærkvöld. Sveinbjörn Pétursson stóð í marki EHV Aue í um hálftíma...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
18158 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -