- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Heiðmar ráðinn aðstoðarmaður Prokop

Heiðmar Felixson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs Hannover-Burgdorf sem leikur í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Heiðmar mun þar með starfa með Christian Prokop fyrrverandi landsliðsþjálfara Þýskalands. Prokop tók við þjálfun Hannover-Burgdorf í sumar Carlos Ortega sem var ráðinn...

Haukur er í hópnum í Meistaradeildinni í kvöld

Haukur Þrastarson er í leikmannahópi pólska meistaraliðsins Lomza Vive Kielce í kvöld þegar liðið mætir ungverska liðinu Veszprém í annarri umferð B-riðils Meistaradeildar Evrópu í handknattleik. Þetta er í fyrsta sinn á leiktíðinni sem Haukur er í leikmannahópi Vive...

Á morgun, á morgun…

Enn einu sinni hefur vaknað upp umræða um þörf á byggingu nýrrar þjóðarhallar fyrir innanhússíþróttir auk þjóðarleikvangs fyrir knattspyrnu og frjálsíþróttir. Aðstaða til landsleikja í handknattleik, knattspyrnu, blaki, knattspyrnu og frjálsíþrótta hefur árum saman verið óviðunandi. Mannvirkin eru úrelt....

Dagskráin: Fimm leikir í tveimur deildum

Til stendur að önnur umferð í Olísdeild karla hefjist í kvöld. Þrír leikir eru á dagskrá, tveir á höfuðborgarsvæðinu og einn á Akureyri þar sem aðrir nýliðar deildarinnar, Víkingar, sækja heim KA-menn. Þeir síðarnefndu léku gegn hinum nýliðum Olísdeildar,...
- Auglýsing-

Molakaffi: Danskar í Lemgo, Vranjes, Asíukeppnin, liggja undir grun

Karina Christiansen og Line Hesselda frá Danmörku dæma síðari viðureign Lemgo og Vals í annarri umferð Evrópudeildar karla í handknattleik í Lemgo á þriðjudaginn í næstu viku. Frá þessu var greint í gær á heimasíðu danska handknattleikssambandsins.  Bosníska varnartröllið Vladimir...

Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni

Hafnfirðingurinn ungi, Orri Freyr Þorkelsson, skoraði í kvöld sitt fyrsta mark í Meistaradeild Evrópu í handknattleik og það á heimavelli þýska stórliðsins THW Kiel þegar hann og samherjar í norska meistaraliðinu Elverum sóttu Kiel-liðið heim. Orri Freyr skoraði eitt...

Storhamar slær ekki af undir stjórn Axels

Axel Stefánsson fagnaði í kvöld fimmta sigri sínum með Storhamar í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik þegar lið hans vann Follo með tíu marka mun, 35:25, á útivelli. Axel tók við sem annar þjálfari Storhamar í sumar. Storhamar er efst í...

Nýttu frídag eftir sigur til að fara á gosslóðir

Bjarki Már Elísson og samherjar í þýska handknattleiksliðinu TBV Lemgo Lippe nýttu daginn í dag til þess að skoða sig um í nágrenni Reykjavíkur. Þeir halda af landi brott í fyrramálið eftir að hafa mætt Íslandsmeisturum Vals í...
- Auglýsing-

U18 ára landsliðið fer til Danmerkur

Ágúst Þór Jóhannsson og Árni Stefán Guðjónsson þjálfarar U-18 ára landsliðs kvenna hafa valið 16 leikmenn sem taka þátt í tveimur vináttulandsleikjum við Dani ytra 8. og 9. október nk. Leikirnir við Dani eru til undirbúnings fyrir umspilskeppni sem...

Sami fjöldi dómara og í fyrra – lítið má út af bera

Alls eru 36 dómarar á lista yfir þá sem dæma kappleiki Olís- og Grill66-deildum karla og kvenna á keppnistímabilinu sem hófst á dögunum. Sömu dómarar dæma einnig leikina í Coca Colabikarkeppninni á keppnistímabilinu. Þetta er nánast sami fjöldi og...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19093 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -