Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Dale, AEK, Norðmenn, Frakkar, Ungverjar, Svartfellingar

Norska landsliðskonan Kari Brattset Dale hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við ungverska stórliðið Györ. Dale, sem stendur á þrítugu og er á leiðinni á Ólympíuleika með Evrópumeisturum Noregs, hefur verið í herbúðum Györ síðustu þrjú ár og...

Viktor semur við Fjölni

Viktor Lekve hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Fjölni á næsta tímabili og mun því mynda þjálfarateymi ásamt Guðmundi Rúnari Guðmundssyni sem stýrði liðinu síðasta vetur og gerir áfram á næstakeppnistímabili. Viktor stýrir einnig ungmennaliði Fjölnis sem ætlar að...

Landsliðskonan verður áfram í herbúðum meistaranna

Landsliðskonan í handknattleik og leikmaður Íslands- og deildarmeistara KA/Þórs, Ásdís Guðmundsdóttir, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við KA/Þór. Ásdís sem er 23 ára gömul er uppalin hjá KA/Þór og tók ung skrefið upp í meistaraflokk. „Ásdís hefur verið...

Fleiri rósir í hnappagatið

Markakóngur þýsku 1. deildarinnar í handknattleik karla og leikmaður SC Magdeburg, Ómar Ingi Magnússon, var vitanlega valinn í úrvalslið deildarinnar sem kynnt var til sögunnar í morgun. Valið er enn ein rósin í hnappagat Ómars Inga eftir frábært keppnistímabil....
- Auglýsing-

Kúbverjar heltast úr lestinni

Ekkert verður af því að landslið Kúbu taki þátt í undankeppni heimsmeistaramóts kvenna í handknattleik sem stendur fyrir dyrum í Chicago í Bandaríkjunum 23. til 27. ágúst. Um er að ræða undankeppni fyrir ríki Norður-Ameríku og eyjanna í Karabíahafi. Kórónuveiran...

Molakaffi: Lunde, Aron, Richardson, Darmoul, Bak Burcea

Norski landsliðsmarkvörðurinn Katrine Lunde er á leið á sínu fjórðu Ólympíuleika síðar í þessum mánuði. Hún segir leikana verða þá síðustu á ferlinum. Lunde er 41 árs gömul og hefur leikið 307 landsleiki hefur margoft unnið til verðlauna með...

Guigou og Karabatic slást í hópinn með Lavrov og Yoon

Michaël Guigou og Nikola Karabatic eru á leiðinni á sína fimmtu Ólympíuleika með franska landsliðinu í handknattleik. Þeir eru báðir í 15 leikmannahópi sem Guillaume Gille, landsliðsþjálfari, tilkynnti í morgun og leikur fyrir hönd Frakklands í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna sem...

Aron hrósaði sigri í fyrsta undirbúningsleiknum

Aron Kristjánsson og lærisveinar hans í landsliði Barein unnu landslið Eistlands, 36:25, í fyrstu viðureign liðanna af þremur á nokkrum dögum í Barein í fyrradag. Liðin mætast aftur í dag. Leikirnir eru liður í undirbúningi Bareina fyrir Ólympíuleikana en...
- Auglýsing-

Lögfræðingurinn heldur áfram að stýra leiknum

Hrannar Bragi Eyjólfsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Stjörnuna og mun því vera áfram hjá uppeldisfélagi sínu næstu árin. Hrannar Bragi er miðjumaður sem lék alla leikina 22 með Stjörnunni í Olísdeildinni á síðasta tímabili og...

Molakaffi: Stórsigur í Bayonne, Svíar, Hollendingar, Hrafnhildur Hekla, Grikkir

Camilla Herrem skoraði sex mörk og var markahæst í norska landsliðinu þegar það vann franska landsliðið í vináttuleik í Bayonne í Frakklandi í gærkvöld, 30:21. Norska liðið var með mikla yfirburði í leiknum en liðin mættust síðast í úrslitaleik...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19005 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -