Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Bætist í hópinn hjá Fram

Handknattleiksmaðurinn Kristófer Andri Daðason er kominn í herbúðir Fram á nýjan leik eftir að hafa leikið með HK á síðasta keppnistímabili í Grill66-deildinni þar sem liðið stóð upp sem sigurvegari. Kristófer Andri, sem á 23. aldursári, hefur einnig m.a. leikið...

Sigurður er sagður til sölu

Óvíst er með hvaða liði handknattleiksmarkvörðurinn Sigurður Ingiberg Ólafsson leikur á næsta keppnistímabili. Hann er samningsbundinn ÍR næsta árið en mjög ólíklegt er að hann leiki með liðinu sem tekur sæti í Grill66-deildinni eftir fall úr Olísdeildinni á vormánuðum. Samkvæmt...

FH með í Evrópukeppni fimmta árið í röð

„FH verður í Evrópupottinum fimmta árið í röð þegar dregið verður,“ sagði Ásgeir Jónsson formaður handknattleiksdeildar Hafnarfjarðarliðsins við handbolta.is í morgun þegar hann staðfesti að FH-ingar ætli að senda karlalið sitt til keppni í Evrópubikarkeppninni sem hefst í haust. Þar...

Aron mætir ekki gömlu samherjunum

Danska meistaraliðið Aalborg Håndbold, sem Aron Pálmarsson gengur til liðs við í sumar og leikur með næstu árin, hafnaði ekki í riðli með Evrópumeisturum Barcelona þegar dregið var í riðla Meistaradeildar Evrópu í handknattleik í morgun. Aalborg verður í...
- Auglýsing-

Evrópumeistararnir í sterkari riðli Meistaradeildar

Evrópumeistarar Vipers Kristiansand frá Noregi drógust í riðil með CSKA Moskvu og ungverska stórliðinu Györ í B-riðil Meistaradeildar Evrópu í handknattleik þegar dregið var í riðla í morgun. Ljóst er að þrjú af þeim fjórum liðum sem þykja fyrirfram...

Ilic og Gulyás taka við ungverska stórveldinu

Tilkynnt var í morgun að Serbinn Momir Ilic hafi verið ráðinn þjálfari ungverska stórliðsins Veszprém. Hann tekur við af Spánverjanum David Davis sem var gert að taka pokann sinn á dögunum vegna óviðundandi árangurs liðsins á síðustu leiktíð að...

Molakaffi: Svensson, Diocou, Wanne, Glandorf

Tomas Svensson, fyrrverandi markvarðaþjálfari íslenska karlalandsliðsins, hefur látið af störfum hjá SC Magdeburg eftir sjö ár sem markvarðaþjálfari félagsins. Ekki kemur fram í tilkynningu SC Magdeburg í gær hvað Svensson tekur sér fyrir hendur. Á vordögum var hann orðaður...

Ekkert hik á markverðinum

Handknattleiksmarkvörðurinn Sverrir Andrésson hefur framlengt samningi sínum við Víking til næstu tveggja ára. „Sverrir er einn af máttstólpum liðsins og stór ástæða fyrir velgengni seinasta tímabils. Sverrir var með yfir 40% meðalmarkvörslu í Grill66-deildinni á nýliðnu tímabili og var að...
- Auglýsing-

Ísland hefur undankeppni EM2022 í Eskilstuna

Fyrsti leikur kvennalandsliðsins í handknattleik í undankeppni Evrópumótsins í handknattleik 2022 verður gegn sænska landsliðinu í Stiga Sports Arena i Eskilstuna 7. okótber. Frá þessu greinir sænska handknattleikssambandið en sænska landsliðið býr sig nú af krafti undir þátttöku á...

Jacobsen hefur valið hópinn fyrir titilvörnina

Undir stjórn Guðmundar Þórðar Guðmundssonar varð danska karlalandsliðið Ólympíumeistari í fyrsta sinn fyrir fimm árum. Framundan er titilvörn hjá Dönum og nú hefur Nikolaj Jacobsen landsliðsþjálfari valið 14 leikmenn auk tveggja varamanna til þess að taka þátt í undirbúningi...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19004 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -