- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Patrekur sæmdur austurrísku heiðursmerki

Patrekur Jóhannesson núverandi þjálfari karlaliðs Stjörnunnar og fyrrverandi landsliðsþjálfari Austurríkis í handknattleik karla var í gær sæmdur silfurmerki Austurríkis fyrir störf í þágu íþrótta í Austurríki. Maria Rotheiser-Scotti sendiherra Austurríkis á Íslandi sæmdi Patrek silfurmerkinu við athöfn á Bessastöðum að...

Molakaffi: Navarro Darmoul, Trtik, Delta, Bauer

Silvia Navarro landsliðsmarkvörður Spánar í handknattleik kvenna hefur framlengt samning sinn við BM Remudas til eins árs, fram á mitt næsta ár. Navarro er 42 ára gömul og hefur verið ein sú besta í sinni stöðu um langt árabil....

Ólafur er á leið til silfurliðsins í Frakklandi

Landsliðsmaðurinn í handknattleik, Ólafur Andrés Guðmundsson, verður leikmaður franska stórliðsins Montpellier á næsta keppnistímabili. Þetta hefur handbolti.is samkvæmt heimildum og um sé að ræða tveggja ára samning. Reiknað er með að greint verði frá vistaskiptum Ólafs Andrésar á allra næstu...

Þrír sigurleikir í upphitun fyrir Ólympíuleikana

Landslið Barein, undir stjórn Arons Kristjánssonar, vann í morgun þriðja vináttuleikinn í röð við landslið Eistlands, 40:25, en eins og fyrri viðureignirnar sem fram fóru á laugardaginn og mánudaginn, þá eru þær liður í undirbúningi landsliðs Barein fyrir þátttöku...
- Auglýsing-

Er ýmislegt til lista lagt

Handknattleikskonunni Önnu Úrsúlu Guðmundsdóttur er ýmislegt til lista lagt á íþróttavellinum. Hún er ein reyndasta og sigurælasta handknattleikskona landsliðsins og mætti til leiks á ný með Val í Olísdeildinni þegar á síðasta keppnistímabil leið auk þess sem hún gaf...

Vonir Grænlendinga glæðast

Forsvarsmenn grænlenska kvennalandsliðsiins horfa bjartsýnir fram á veginn vegna komandi undankeppni heimsmeistaramótsins fyrir Norður-Ameríku sem fram fer í Chicago í næsta mánuði. Eins og handbolti.is hefur greint frá þá hafa álfurmeistarar Kúbu hætt við þátttöku. Þar með glæðast vonir...

Molakaffi: Dale, AEK, Norðmenn, Frakkar, Ungverjar, Svartfellingar

Norska landsliðskonan Kari Brattset Dale hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við ungverska stórliðið Györ. Dale, sem stendur á þrítugu og er á leiðinni á Ólympíuleika með Evrópumeisturum Noregs, hefur verið í herbúðum Györ síðustu þrjú ár og...

Viktor semur við Fjölni

Viktor Lekve hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Fjölni á næsta tímabili og mun því mynda þjálfarateymi ásamt Guðmundi Rúnari Guðmundssyni sem stýrði liðinu síðasta vetur og gerir áfram á næstakeppnistímabili. Viktor stýrir einnig ungmennaliði Fjölnis sem ætlar að...
- Auglýsing-

Landsliðskonan verður áfram í herbúðum meistaranna

Landsliðskonan í handknattleik og leikmaður Íslands- og deildarmeistara KA/Þórs, Ásdís Guðmundsdóttir, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við KA/Þór. Ásdís sem er 23 ára gömul er uppalin hjá KA/Þór og tók ung skrefið upp í meistaraflokk. „Ásdís hefur verið...

Fleiri rósir í hnappagatið

Markakóngur þýsku 1. deildarinnar í handknattleik karla og leikmaður SC Magdeburg, Ómar Ingi Magnússon, var vitanlega valinn í úrvalslið deildarinnar sem kynnt var til sögunnar í morgun. Valið er enn ein rósin í hnappagat Ómars Inga eftir frábært keppnistímabil....

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19051 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -