Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Sanngjarnt á Seltjarnarnesi

Grótta og Stjarnan skildu jöfn, 25:25, í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi í jöfnum leik sem verður vart minnistæður fyrir annað en jafnteflið. Bæði lið fengu tækifæri til að vinna leikinn undir lokin en allt kom fyrir ekki. Markverðir beggja liða...

Döhler fór á kostum

Phil Döhler, markvörður FH, fór á kostum í sigurleik liðsins á Þór Akureyri í Olísdeild karla í handknattleik í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld. Hann varði 13 skot og var með 50% hlutfallsmarkvörslu í fmm marka sigri FH, 24:19....

Fimm marka sigur í Zaporozhye

Spænska meistaraliðið Barcelona byrjaði keppnistímabilið í Meistaradeild karla með öruggum sigri á úkraínska liðinu MotorZaporozhye, 30:25, en leikið var í Úkraínu í kvöld. Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir Barcelona í leiknum en liðið var með tveggja marka forskot...

Óðinn og félagar unnu toppslag

Team Tvis Holstebro, lið Óðins Þórs Ríkharðssonar, varð fyrst liða til þess að leggja Skanderborg Håndbold í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik á þessari leiktíð þegar liðin mættust á heimavelli TTH í kvöld, lokatölur, 34:27. TTH var fjórum mörkum yfir...
- Auglýsing-

Bikardráttur framundan

Dregið verður í fyrstu umferð Coca-Cola bikars karla, 32 liða úrslit, á morgun kl. 11 á skrifstofu Handknattleikssambands Íslands, HSÍ. Nítján lið eru skráð til leiks og því verður dregið í fjórar viðureignir sem skulu fara fram þriðjudaginn...

HK ætlar rakleitt aftur upp

„Markmið okkar eru að fara beint upp aftur í deild þeirra bestu. Um leið ætlum við að halda áfram þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað á ungum uppöldum leikmannahópi HK í bland við reynslumikla stráka sem komu í...

Námskeið fyrir ritara og tímaverði

Dómaranefnd stendur fyrir öðru námskeiði fyrir ritara og tímaverði mánudaginn 21. september kl. 18.00. Námskeiðið verður haldið í gegnum fjarfundarbúnað (MS teams) og geta þeir sem sækja námskeiðið fylgst með í tölvu, á spjaldtölvu eða í síma (við mælumst...

Bjarki skoraði, Arnór ekki með og áhorfendur

Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður, var markahæstur hjá Lemgo með sex mörk þegar liðið vann 2. deildarlið Hamm-Westfalen, 31:22, í æfingaleik í gærkvöld á útivelli. Lemgo var fimm mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 15:10. Liðið skoraði fjögur fyrstu mörk...
- Auglýsing-

Tvær fimmur úr Meistaradeild – myndskeið

Að vanda hefur Handknattleikssamband Evrópu tekið saman myndskeið með fimm fallegustu mörkunum og fimm bestu markvörslum Meistaradeildar kvenna. Í fyrstu umferð deildarinnar um síðustu helgi sáust mörg glæsilega tilþrif, jafnt hjá þeim sem skoruðu mörkin eða voru að verjast...

Verð í stærra hlutverki í sókninni

Guðmundur Hólmar Helgason flutti heim í sumar með fjölskyldu sinni eftir fjögur ár í atvinnumennsku, tvö ár í Frakklandi og önnur tvö ár í Austurríki. Hann ákvað að ganga til lið við Selfoss og byrjaði sannarlega af krafti með...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18959 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -