- Auglýsing -
Team Tvis Holstebro, lið Óðins Þórs Ríkharðssonar, varð fyrst liða til þess að leggja Skanderborg Håndbold í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik á þessari leiktíð þegar liðin mættust á heimavelli TTH í kvöld, lokatölur, 34:27.
TTH var fjórum mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 18:14. Óðinn Þór skoraði fjórum sinnum en átti sjö skot á mark Skanderborgar-liðsins.
Þar með hefur TTH sex stig að loknum fjórum leikjum og hefur tyllt sér á topp deildarinnar. Meistarar Aalborg hafa einnig sex stig en eiga leik inni alveg eins og GOG og SönderjyskE, sem einnig eru taplaus.
- Auglýsing -