- Auglýsing -
- Auglýsing -

HK ætlar rakleitt aftur upp

Meistaraflokkslið HK í karla og kvennaflokki leiktíðini 2020/2021. Kvennaliðið er í Olísdeildinni en karlarnir í Grill 66-deildinni en stefna upp í Olísdeild. Mynd/HK
- Auglýsing -

„Markmið okkar eru að fara beint upp aftur í deild þeirra bestu. Um leið ætlum við að halda áfram þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað á ungum uppöldum leikmannahópi HK í bland við reynslumikla stráka sem komu í sumar,“ segir Elías Már Halldórsson, þjálfari karlaliðs HK sem spáð var efsta sæti Grill 66-deildar karla í árlegri spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna liða deildarinnar og birt var á dögunum.

HK féll í Grilldeildina í vor eftir eins árs veru í Olísdeildinni. „Við erum ánægð með liðið en líka stolt af því að af 20 manna æfingahópi eru 15 uppaldir HK-ingar og meðalaldurinn 21 ár,“ sagði Elías Már.

Fyrsti leikur HK í deildinni verður á heimavelli, Kórnum, á laugardaginn þegar U-lið Selfoss kemur í heimsókn. Flautað verður til leiks klukkan 13.30.

Talið er að með tilkomu nýrra liða í Grill 66-deildina, s.s. Kríu og Vængja Júpíters verði deildarkeppnin enn skemmtilegri en áður. Breiddin verði meiri með tilkomu fyrrgreindra liða auk Harðarmann á Ísafirði sem setja skemmtilegan svip á deildina.

Elías Már segist búa  sig undir harða keppni í vetur. Hann renni þó nokkuð blint í sjóinn með andstæðingana. „Ég veit ekki hverjir verða okkar helstu keppinautar en ljóst að Grilldeildin hefur ekki verið svona sterk í mörg ár og nokkur lið eins og Krían og Vængir Júpíters nokkuð óskrifað blað í byrjun. Við bíðum í eftirvæntingu eftir að flautað verður til leiks,“ sagði Elías Már Halldórsson, þjálfari HK.

Leikmannahópur HK:

Davíð Svansson, markvörður

Sigrjón Guðmundsson, markvörður

Sigþór Óli Árnason, vinstra horn

Einar Pétur Pétursson, vinstra horn

Símon Michael Guðjónsson, vinstra horn

Pálmi Fannar Sigurðsson, vinstri skytta

Ágúst Ingi Óskarsson, vinstri skytta

Styrmir Máni Arnarsson, vinstri skytta

Jóhann Birgir Ingvarsson, vinstri skytta

Kristófer Andri Daðason, miðjumaður, vinstri skytta

Hjörtur Ingi Halldórsson, miðjumaður

Haukur Ingi Hauksson, miðjumaður, vinstri skytta

Júlíus Flosason, miðjumaður

Bjarki Finnbogason, miðjumaður

Einar Bragi Aðasteinsson, miðjumaður, vinstri skytta

Kári Tómas Hauksson, hægri skytta

Kristján Pétur Barðason, hægra horn

Sigurvin Jarl Ármannsson, hægra horn

Sigurður Jeffersson Gurarino, línumaður

Davíð Elí Heimisson, línumaður

Kristján Otto Hjálmsson, línumaður

Breytingar frá síðasta keppnistímabili:

Komnir:

Jóhann Birgir Ingvarsson – FH

Hjörtur Ingi Halldórsson – Haukum 

Einar Pétur Pétursson – Haukum 

Farnir:

Stefán Huldar Stefánsson – Haukar

Pétur Árni Hauksson – Stjörnuna

Þorgeir Bjarki Davíðsson – Valur

Eiríkur Guðni Þórarinsson – FH

Blær Hinriksson – Afturelding

Kristófer Dagur Sigurðsson – TV 05 Mulheim

Ásmundur Atlason – Kría 

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -