Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Grill 66kvenna: FH fer í umspil – Ingunn skoraði sigurmark – úrslit, staðan

FH vann mikilvægan sigur á HK í næst síðustu umferð Grill 66-deildar kvenna í Kórnum í dag, 28:26. Þar með hreppa FH-ingar sæti í 1. umferð umspils um sæti í Olísdeild kvenna ásamt Gróttu og Víkingi sem er í...

Þrír íslenskir handboltaþjálfarar verða á Ólympíuleikunum í París

Þrír íslenskir handknattleiksþjálfarar verða í eldlínunni í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna sem fram fara í sumar þótt hvorki karla- né kvennalandslið Íslands verði á meðal þátttakenda. Á leikunum sem fram fóru í Tókýó stýrðu fjórir þjálfarar frá Íslandi liðum í handknattleikskeppni...

Slóvenar slást í Ólympíuhópinn

Slóvenar fylgja Spánverjum eftir í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna úr fyrsta riðli undankeppninnar. Slóvenar tryggðu sér farseðilinn til Parísar í dag með sigri á landsliði Barein, 32:26, í þriðju og síðustu umferð 1. riðils í Granollers á Spáni. Aron Kristjánsson er...

Eistlendingar verða andstæðingar í HM-umspili

Íslenska landsliðið í handknattleik karla mætir landsliði Eistlands í umspilsleikjum í maí um keppnisrétt á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Danmörku, Króatíu og Noregi í janúar á næsta ári. Eistlendingar unnu Úkraínumenn í dag, 41:33, í síðari leik þjóðanna...
- Auglýsing-

Streymi: Króatía – Alsír, kl. 15.45 – forkeppni ÓL

Króatíska landsliðið, undir stjórn Dags Sigurðssonar, mætir landsliði Alsír í 3. umferð forkeppni handknattleikskeppni Ólympíuleikanna, í Hannover klukkan 15.45. Króatíska landsliðið hefur þegar tryggt sér farseðilinn á Ólympíuleikana í sumar. Alsíringar eiga ekki lengur möguleika á að fylgja Króötum...

Alfreð mætir með sveit sína til leiks á ÓL í París

Þjóðverjar verða með handknattleikskeppni karla á Ólympíuleikunum í París í sumar. Þeir unnu Austurríkismenn, 34:31, í úrslitaleik um farseðil á leikana í síðustu umferð 2. riðils forkeppni leikanna í ZAG-Arena í Hannover í dag. Um leið er ljóst...

Streymi: Barein – Slóvenía, kl. 14.15 – forkeppni ÓL

Klukkan 14.15 hefst viðureign landsliða Barein og Slóveníu í 3. umferð forkeppni Ólympíuleikanna í handknattleik karla. Leikið er í Granollers á Spáni. Aron Kristjánsson er þjálfari landsliðs Barein. Forkeppni ÓL24, karlar: Leikir, úrslit, staðan Hér fyrir neðan er hlekkur á...

Streymi: Þýskaland – Austurríki, kl. 13.10 – forkeppni ÓL

Þýska landsliðið, undir stjórn Alfreðs Gíslasonar, mætir landsliði Austurríkis í 3. umferð forkeppni handknattleikskeppni Ólympíuleikanna, í Hannover klukkan 13.10. Um er að ræða hreinan úrslitaleik um þátttökurétt á Ólympíuleikunum. Hvort lið hefur tvö stig eftir tvo leiki. Forkeppni ÓL24, karlar:...
- Auglýsing-

Dagskráin: Keppt um sæti í umspilinu

Fjórir síðustu leikir 17. og næst síðustu umferðar Grill 66-deildar kvenna fara fram í dag og hefjast klukkan 16. Selfoss-liðið hefur fyrir löngu unnið deildina en áfram stendur yfir keppni um sæti í umspilinu sem tekur við. Aðalbaráttan er...

Molakaffi: Dana, Elín, Bjarki, Jacobsen, Schmid, vináttuleikir

Dana Björg Guðmundsdóttir skoraði þrjú mörk þegar lið hennar, Volda, tapaði fyrir Ålgård, 32:28, í næst efstu deild norska handknattleiksins í gær. Leikurinn fór fram í Ålgårdhallen. Volda er áfram í öðru sæti deildarinnar og í umspilssæti ásamt Flint...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 til 2019. Stofnaði handbolti.is árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 164 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
12489 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -