- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Frammistaðan var bara til skammar

https://www.youtube.com/watch?v=m6zKurJbmNI „Við gáfumst upp, misstum trúna. Frammistaðan í síðari hálfleik var bara til skammar,“ segir Halldór Stefán Haraldsson þjálfari KA við handbolta.is eftir 11 marka tap liðsins fyrir Aftureldingu, 33:22, að Varmá í kvöld í þriðju umferð Olísdeildar karla í...

Þjálfarinn dró fram skóna og reið baggamuninn

Gunnar Steinn Jónsson þjálfari Fjölnis tók fram keppnisskóna eftir rúmlega tveggja ára hlé, reimaði þá á sig í kvöld og lék með liði sínu gegn HK í þriðju umferð Olísdeildar karla í handknattleik. Þátttaka Gunnars Steins, fyrrverandi landsliðsmanns, reið...

Stórsigur Aftureldingar – KA-mönnum féll allur ketill í eld

Afturelding vann stórsigur á KA, 33:22, í Olísdeild karla í handknattleik að Varmá í kvöld og hafa þar með tvo vinninga af þremur mögulegum í deildinni. KA-menn reka lestina án stiga og verða alvarlega að hugsa sinn gang, ekki...

Sjö mörk og best á vellinum

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði sjö mörk og var maður leiksins þegar Kristianstad HK vann Skövde, 33:22, á heimavelli í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. Þetta var fyrstu sigur Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni á leiktíðinni en liðið tapaði naumlega...
- Auglýsing-

FH og Valur sameinast um heimavöll á 95 ára afmælisdegi FH

FH og Valur taka höndum saman um að heimaleikir liðanna í 2. umferð riðlakeppni Evrópudeildar karla í handknattleik fari fram í Kaplakrika 15. október. Sama dag verður FH 95 ára. Frá þessu er greint á Vísir í dag. Ástæða...

Dagskráin: Margt um að vera á föstudagskvöldi

Áfram verður nóg um að vera í handboltanum innanlands í kvöld. Þriðju umferð Olísdeildar karla lýkur en fjórir leikir fóru fram í gærkvöld. Einnig hefst keppni í Grill 66-deild karla með sannkölluðum toppslag Víkinga og Þórsara. Ofan á þetta...

Solberg er óvænt hættur með sænska landsliðið

Norðmaðurinn Glenn Solberg hefur sagt starfi sínu lausu sem landsliðsþjálfari Svíþjóðar í handknattleik karla. Sænska handknattleikssambandið tilkynnti um óvænta afsögn Solbergs í morgun. Ekki fylgir sögunni hver tekur við en ljóst er að hafa verður hraðar hendur því undankeppni...

Molakaffi: Guðmundur, Arnór, Mørk, Claar

Guðmundur Bragi Ástþórsson og liðsfélagar í Bjerringbro/Silkeborg unnu TTH Holstebro, 33:31, í Holstebro á Jótlandi í gærkvöld í 3. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Guðmundur Bragi skoraði ekki mark í leiknum.  Bjerringbro/Silkeborg hefur unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum...
- Auglýsing-

Einstefna í síðari hálfleik á Ásvöllum

Haukar unnu stórsigur á Stjörnunni, 29:16, í síðasta leik þriðju umferðar Olísdeildar kvenna í handknattleik á Ásvöllum í kvöld. Staðan var 14:10 fyrir Hauka að loknum fyrri hálfleik. Hafnarfjarðarliðið hefur fjögur stig en Stjarnan tvö eftir góðan sigur á...

Áfram halda Haukar að vinna – einnig Fram, Stjarnan og FH

Sigurganga Hauka í Olísdeild karla í handknattleik hélt áfram í kvöld þegar liðið lagði nýliða ÍR í hröðum og skemmtilegum leik í Ásvöllum, 37:30. Hafnarfjarðarliðið hefur þar með unnið þrjá fyrstu leiki sína í deildinni og er það eina...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18804 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -