Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Afturelding – FH: 100 miðar í sölu klukkan 14

Eitt hundrað viðbótar aðgöngumiðar á fjórða úrslitaleik Aftureldingar og FH um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla fara í sölu á stubb.is klukkan 14. Frá þessu er greint á Facebook-síðu FH. Aðeins tók þrjá stundarfjórðunga að selja talsvert á annað þúsund aðgöngumiða...

Dagskráin: Bikar á loft eða oddaleikur á sunnudaginn

Fjórði úrslitaleikur Aftureldingar og FH um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla fer fram að Varmá í Mosfellsbæ í kvöld. Sigurður Hjörtur Þrastarson og Svavar Ólafur Pétursson flauta til leiks klukkan 19.40. Uppselt er á leikinn. Aðgöngumiðarnir seldust á þremur stundarfjórðungum...

Síðdegis verður dregið í riðla HM karla 2025

Síðdegis verður dregið í riðla heimsmeistaramótsins í handknattleik í karla Vatroslav Lisinski-tónleikhöllinni í Zagreb, höfuðborg Króatíu. Nafn Íslands verður á meðal 32 liða sem dregin verður úr skálunum. Hafist verður handa við að draga saman í riðlana átta klukkan...

Molakaffi: Hannes, Óli, Johansson, Weinhold

Hannes Jón Jónsson og lærisveinar hans í Alpla Hard unnu fyrsta úrslitaleikinn við Linz um austurríska meistaratitilinn í handknattleik karla í gærkvöld, 32:26. Leikurinn fór fram í Bregenz.  Næst leiða liðin saman hesta sína í Linz á föstudagskvöld.  Færeyski landsliðsmaðurinn...
- Auglýsing-

Tryggvi sænskur meistari með IK Sävehof

Tryggvi Þórsson varð í kvöld sænskur meistari í handknattleik karla með liði sínu IK Sävehof eftir að liðið lagði Ystads IF, 32:27, í fjórðu viðureign liðanna sem fram fór í Ystad. IK Sävehof vann tvöfalt á tímabilinu því á...

Tvær frá ÍBV ganga til liðs við Rival í Haugasundi

Unglingalandsliðskonurnar úr Vestmannaeyjum Amelía Dís Einarsdóttir og Þóra Björg Stefánsdóttir hafa ákveðið að söðla um og ganga til liðs við Rival sem er með bækistöðvar í Haugasundi. Íslendingurinn Jörgen Freyr Ólafsson Naabye þjálfar liðið en hann flutti til Haugasunds...

Tjörvi Týr orðinn leikmaður Bergischer HC

Tjörvi Týr Gíslason hefur skrifað undir eins árs samning við þýska 1. deildarliðið Bergischer HC. Félagið segir frá komu hans í dag. Tjörvi flytur til Þýskalands í sumar og mun leika með liðinu hvort sem það verður í efstu...

Tinna Sigurrós hefur gengið til liðs við Stjörnuna

Tinna Sigurrós Traustadóttir landsliðskona í handknattleik frá Selfossi hefur ákveðið að ganga til liðs við Stjörnuna og kveðja þar með uppeldisfélag sitt. Garðabæjarliðinu hefur skort örvhenta skyttu og ljóst að koma Tinnu Sigurrósar er mikill fengur fyrir liðið. Tinna Sigurrós...
- Auglýsing-

Lokahóf: Marta og Elmar stóðu upp úr hjá ÍBV

Marta Wawrzynkowska og Elmar Erlingsson voru fremst jafningja hjá meistaraflokksliðum ÍBV á síðasta keppnistímabili, að mati félagsmanna, þegar lokahóf handknattleiksdeildar fór fram á dögunum þar sem leikmenn, þjálfarar og fleiri sem tengjast starfi deildarinnar komu saman og áttu saman...

Lokahóf: Katla og Einar best á Selfossi – Kristín og Jón félagar ársins

Katla María Magnúsdóttir, landsliðskona í handknatttleik og Einar Sverrisson voru valin bestu leikmenn meistaraflokksliða Selfoss á nýliðnu keppnistímabili. Valið var kynnt á glæsilegu lokahófi handknattleiksdeildar Selfoss sem fram fór a laugardaginn. Að vanda voru margar viðurkenningar afhentar á hófinu. Félagi...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18961 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -