Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Rúnar og Viggó skelltu þriðja toppliðinu í röð

Undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar vann Leipzig þriðja topplið þýsku 1.deildarinnar í röð í kvöld þegar liðsmenn Rhein-Neckar Löwen komu í heimsókn og töpuðu með átta marka mun, 37:29. Fyrir þremur vikum vann Leipzig þýsku meistarana Magdeburg og fyrir nærri...

Eyjamenn skoruðu þrjú síðustu mörkin á Ísafirði

ÍBV fluttist upp í þriðja sæti Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld þegar liðið vann Hörð, 33:30, á viðureign liðanna í íþróttahúsinu á Torfnesi á Ísafirði. ÍBV var í kröppum dansi gegn botnliðinu en tókst að skora þrjú síðustu...

Afturelding hitti á stjörnuleik í Höllinni

Afturelding leikur til úrslita við Hauka í Poweradebikarnum í handknattleik karla á laugardaginn eftir að hafa hitt á sannkallaðan stjörnuleik í gegn Stjörnunni í undanúrslitum í Laugardalshöll í kvöld, 35:26. Staðan í hálfleik var 17:10.Aftureldingarmenn byrjuðu með miklum...

Haukar tóku Framara í karphúsið

Haukar leika til úrslita í Poweradebikarnum í handknattleik karla laugardaginn við annað hvort Aftureldingu eða Stjörnuna. Það varð ljóst eftir að leikmenn Hauka tóku Framara í karphúsið í Laugardalshöll í undanúrslitum í kvöld. Lokatölur, 32:24, eftir að Haukar voru...
- Auglýsing-

Fleiri staðreyndir fyrir undanúrslitaleikina

Leikið verður til undanúrslita í bikarkeppni HSÍ, Poweradebikarnum, í Laugardalshöll í kvöld. Klukkan 18 eigast við Fram og Haukar en klukkan 20.15 verður flautað til leiks Aftureldingar og Stjörnunnar.Hér fyrir neðan er rennt yfir nokkrar staðreyndir um gengi liðanna...

Myndskeið: Óðinn og Magnús eiga tvö af glæsilegustu mörkunum

Handknattleiksmennirnir Óðinn Þór Ríkharðsson hjá Kadetten Schaffhausen í Sviss og Magnús Óli Magnússon leikmaður Vals eiga tvö af fimm glæsilegustu mörkunum sem skoruð voru í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik.Handknattleikssamband Evrópu hefur tekið saman myndskeið, sem er finna hér...

Íslendingar fögnuðu fyrsta meistaratitli Kolstad

Norska úrvalsdeildarliðið Kolstad frá Þrándheimi varð í gærkvöld norskur meistari í handknattleik karla í fyrsta sinn í sögu sinni. Með liðinu leika íslensku landsliðsmennirnir Janus Daði Smárason og Sigvaldi Björn Guðjónsson.Kolstad tryggði sér titilinn í Sør Amfi í Arendal...

Dagskráin: Laugardalshöll og Ísafjörður

Leikið verður til undanúrslita í Poweradebikarkeppni karla (bikarkeppni HSÍ) í handknattleik í Laugardalshöll í kvöld. Fyrri viðureignin hefst klukkan 18 þegar leikmenn Fram og Hauka mætast. Afturelding og Stjarnan eigast við klukkan 20.15 í síðari leik undanúrslitanna. Sigurliðin mætast...
- Auglýsing-

Molakaffi: Óðinn, Ólafur, Sunna, Harpa, Steinunn, í Noregi, Telma, Andersson, Lemke

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði sex mörk, þar af fjögur úr vítaköstum, þegar Kadetten Schaffhausen vann GC Amicitia Zürich, 26:22, á heimavelli í svissnesku A-deildinni í handknattleik í gærkvöld. Aðalsteinn Eyjólfsson er þjálfari Kadetten. Honum var sýnt gula spjaldið í...

Aldís Ásta og Jóhanna fóru á kostum í síðasta heimleiknum

Aldís Ásta Heimisdóttir og Jóhanna Margrét Sigurðardóttir létu sannarlega til sín taka í kvöld þegar lið þeirra, Skara HF, vann Kristianstad með sex marka mun á heimavelli, 35:29, í síðasta heimaleik liðsins í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik.Þær skoruðu sex...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. [email protected]
16414 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -