- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Barcelona semur við ungstirni

- Auglýsing -

Spænska stórliðið Barcelona hefur komist að samkomulagi við spænska ungstirnið Ian Barrufet um að hann leiki áfram með liðinu til sumarsins 2029. Spænski miðillinn Sport greinir frá.

Barrufet er 21 árs vinstri hornamaður sem hefur verið að skipa sér sess í byrjunarliði Barcelona á yfirstandandi tímabili, sem er ekki á hverra færi enda valinn maður í hverju rúmi hjá spænsku meisturunum.

Hann er á meðal efnilegustu leikmanna Evrópu og þrátt fyrir ungan aldur lék Barrufet með spænska landsliðinu á EM 2026 og HM 2025.

Á síðasta tímabili lék hann með Arnari Frey Arnarssyni og Elvari Erni Jónssyni hjá MT Melsungen í 1. deild Þýskalands. Elvar Örn leikur nú með SC Magdeburg og Arnar Freyr rær á önnur mið í sumar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -