Ekkert hefur ennþá verið staðfest um það hvort meiðsli þau sem Gísli Þorgeir Kristjánsson varð fyrir í viðureign Magdeburg og Lemgo eru alvarleg eða ekki. „Gjarnan vildi ég geta sagt eitthvað um ástandið en ég get það ekki í augnablikinu,“ sagði Bennet Wiegert þjálfari Magdeburg í gær. „Ég vonast eftir staðfestum fréttum sem fyrst,“ bætti hann við en Magdeburg leikur sinn síðasta heimaleik á tímabilinu í kvöld þegar Flensburg kemur í heimsókn í næst síðustu umferð þýsku 1. deildarinnar.
Gísli Þorgeir varð að fara af leikvelli meiddur á vinstri öxl eftir tæplega þriggja mínútna leik í viðureign Magdeburg og Lemgo í þýsku 1. deildinni á sunnudaginn. Hann fékk þungt högg á vinstri öxlina eftir að hafa hafa verið hrint.
Eftir leikinn í kvöld á heimavelli mætir Magdeburg liði Bietigheim á útivelli í síðustu umferð þýsku 1. deildarinnar á sunnudaginn.
Um aðra helgi tekur Magdeburg þátt í úrslitahelgi Meistaradeildarinnar í Köln, þriðja árið í röð. Magdeburg mætir Barcelona í undanúrslitum en lið félaganna mættust í úrslitaleik Meistaradeildar fyrir tveimur árum. Þá vann Magdeburg, ekki síst fyrir stórleik Gísla Þorgeirs sem lék óvænt úrslitaleikinn eftir að hafa farið úr axlarlið daginn áður í undanúrslitaleik við Kielce.