Kolstad og Runar mætast í úrslitum norsku bikarkeppninnar í handknattleik karla sunnudaginn 28. desember í Unity Arena í Bærum. Þetta varð ljóst í kvöld eftir að Kolstad lagði Elverum, 30:27, í undanúrslitum í Elverum. Á sama tíma lagði Runar Ísak Steinsson og liðsfélaga í Drammen HK, 38:30, í Runarhallen í Sandefjord.
Rambo var Ísaki og félögum erfiður
Ísak varði 9 skot, 30% hlutfallsmarkvarsla þann tíma sem hann stóð á milli stanganna í marki Drammen í Runarhallen í kvöld. Christoffer Rambo leikmaður Runar var erfiður leikmönnum Drammen í leiknum. Hann skoraði 11 mörk.
Tvö íslensk mörk
Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði tvö mörk, annað úr vítakasti, er Kolstad komst í úrslit norsku bikarkeppninnar að minnsta kosti þriðja árið í röð með sigrinum á Elverum í Terningen Arena, 30:27.
Sigvaldi Björn meiddur
Sigvaldi Björn Guðjónsson fyrirliði Kolstad tók ekki þátt í leiknum vegna meiðsla sem hann varð fyrir á æfingu með landsliðinu í síðustu viku.
Sigurjón Guðmundsson markvörður var í leikmannahópi Kolstad en kom ekkert við sögu.
Tryggvi Þórisson skoraði tvisvar fyrir Elverum.



