Birna Ósk Styrmisdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt Fram sem gildir til næstu tveggja ára, út keppnistímabilið 2027/2028.
Birna Ósk er aðeins 16 ára gömul en þrátt fyrir ungan aldur spilaði hún sex leiki í Olísdeildinni á tímabilinu og skoraði í þeim tvö mörk.
Hún er efnilegur línu- og varnarmaður og hefur verið burðarás í liði Fram 2 í Grill 66 deildinni á tímabilinu. Birna Ósk skoraði 72 mörk í 21 leik og er auk þess í stóru hlutverki í 3. flokki hjá Fram.
„Birna Ósk er gríðarlega efnileg og bindum við vonir við að hún nái að festa sig í sessi hjá okkur í Olísdeildinni á samningstímanum. Til hamingju með nýja samninginn FRAM og Birna Ósk!“ sagði meðal annars í tilkynningu frá handknattleiksdeild Fram.


