Bjarki Már Elísson lék lengst af leikmönnum íslenska landsliðsins á Evrópumótinu í handknattleik sem lauk í Þýskalandi. Af þeim sjö klukkustundum sem landsliðið var á leikvellinum á mótinu var Bjarki með fimm stundir og tæpar sjö mínútur. Sigvaldi Björn Guðjónsson var næstur á eftir. Hann lék í um 22 mínútum skemur en Bjarki Már.
Þess má geta að á EM 2022 lék Sigvaldi Björn í 7 stundir og 47 mínútur af átta stundum mögulegum.
Næstir á eftir Bjarka Már og Sigvalda að þessu sinni voru Elliði Snær Viðarsson, Elvar Örn Jónsson og Viktor Gísli Hallgrímsson.
Fyrir utan Teit Örn Einarsson sem kallaður var inn í hópinn fyrir síðasta leik Íslands á mótinu og kom ekkert við sögu þá lék Kristján Örn Kristjánsson, Donni, minnst eða í 5 mínútur og 24 sekúndur. Hann lék einnig minnst á EM 2022, álíka lengi og að þessu sinni. Einar Þorsteinn Ólafsson var næstur eftir Donna.
Einar Þorsteinn var á vellinum í nærri 13 mínútur. Aðrir náðu að minnsta kosti rúmum klukkutíma á leikvellinum.
Teknir hafa verið saman nokkrir tölfræðiþættir úr gögnum mótsins.

Léku mest:
| Bjarki Már Elísson | 5.06,45 klst. |
| Sigvaldi Björn Guðjónsson | 4.44,36 klst. |
| Elliði Snær Viðarsson | 4.38,35 klst. |
| Elvar Örn Jónsson | 4.34,36 klst. |
| Viktor Gísli Hallgrímsson | 4.32,33 klst. |


Minnst léku:
| Teitur Örn Einarsson | 0 |
| Kristján Örn Kristjánsson | 5,24 mín. |
| Einar Þorsteinn Ólafsson | 12,47 mín. |
| Haukur Þrastarson | 1.16,04 klst. |
| Gísli Þorgeir Kristjánsson | 1.29,58 klst. |
| Janus Daði Smárason | 1.37,39 klst. |

Markahæstir:
| Viggó Kristjánsson | 34 |
| Aron Pálmarsson | 25 |
| Sigvaldi Björn Guðjónsson | 23 |
| Bjarki Már Elísson | 21 |
| Elliði Snær Viðarsson | 21 |
| Ómar Ingi Magnússon | 19 |
| Óðinn Þór Ríkharðsson | 13 |
| Janus Daði Smárason | 12 |

Stoðsendingar:
| Aron Pálmarsson | 21 |
| Viggó Kristjánsson | 13 |
| Gísli Þorgeir Kristjánsson | 11 |
| Ómar Ingi Magnússon | 11 |
| Elvar Örn Jónsson | 9 |
| Haukur Þrastarson | 8 |

Vísað af velli – tvær mínútur:
| Elliði Snær Viðarsson | 20 mín. |
| Aron Pálmarsson | 4 mín. |
| Bjarki Már Elísson | 4 mín. |
| Elvar Örn Jónsson | 4 mín. |
| Viggó Kristjánsson | 4 mín. |
| Ýmir Örn Gíslason | 4 mín. |


Varin skot:
| Viktor Gísli Hallgrímsson | 64/204 – 31% |
| Björgvin Páll Gústavsson | 24/91 – 26% |
| Samanlagt | 88/295 – 29,8% |
| Sóknarnýting: | 200/384 – 52% |

Úrslit leikja Íslands:
| Ísland – Serbía | 27:27 |
| Ísland – Svartfjallaland | 31:30 |
| Ísland – Ungverjaland | 25:33 |
| Ísland – Þýskaland | 24:26 |
| Ísland – Frakkland | 32:39 |
| Ísland – Króatía | 35:30 |
| Ísland – Austurríki | 26:24 |
| Samtals: | 200:209 |




