- Auglýsing -
Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson er í leikmannahópi One Veszprém HC í kvöld í fyrsta sinn eftir að hann meiddist meðan á heimsmeistaramótinu í handknattleik stóð yfir í síðasta mánuði.
Bjarki Már meiddist á æfingu daginn fyrir viðureign Íslands og Króatíu á HM. Rifa kom í vöðva í annarri hnésbótinni.
Veszprém, sem þegar hefur tryggt sér efsta sæti A-riðils Meistaradeildarinnar, sækir Paris Saint-Germain Handball heim í Stade Pierre de Coubertin-íþróttahöllina París. Franska liðið er á hinn bóginn í harðri baráttu við Sporting Lissabon um annað sætið í riðlinum og sem veitir þátttökurétt í átta liða úrslitum.
- Auglýsing -