Danmörk tryggði sér í kvöld Evrópumeistaratitil karla á heimavelli með því að leggja Þýskaland, sem Alfreð Gíslason þjálfar, 34:27 í úrslitaleik í Jyske Bank Boxen í Herning í kvöld. Alfreð og Þjóðverjar gera sér því silfrið að góðu.
Er þetta...
Leikið verður til undanúrslita og úrslita á Evrópumóti karla í handknattleik í Jyske Bank Boxen í Herning á föstudag og sunnudag. Einnig verður leikið um fimmta sæti mótsins sem þjónar e.t.v. ekki miklum tilgangi þótt það sé gert þar...
Ísland hefur lokið leik á Evrópumóti karla í Danmörku, Svíþjóð og Noregi. Ísland tapaði bronsleiknum í Herning í Danmörku í dag og hafnar því í fjórða sæti.
Þrátt fyrir að vera undir allan leikinn gafst íslenska liðið ekki upp og...
„Þetta var einhvern veginn svolítið endurtekið efni, fyrri hálfleikurinn, eins og þetta var í Malmö. Við vorum aðeins of linir,“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson í samtali við handbolta.is eftir eins marks tap Íslands fyrir Króatíu í bronsleik EM í...
„Auðvitað er ég sár og svekktur eins og strákarnir. Það vantaði bara aðeins upp á í dag,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari við handbolta.is eftir eins marks tap Íslands fyrir Króatíu í bronsleik EM í Herning í Danmörku í...
Heimsmeistarar Danmerkur hafa orðið fyrir miklu áfalli fyrir úrslitaleik Evrópumóts karla gegn Þýskalandi sem hefst klukkan 17 í Jyske Bank Boxen í Herning í Danmörku í dag. Simon Hald getur ekki tekið þátt í leiknum vegna meiðsla.
Hald hlaut höfuðhögg...
„Við vorum bara eftir á allan tímann og náðum ekki að spila okkar leik,“ sagði svekktur Ómar Ingi Magnússon, fyrirliði Íslands, í samtali við handbolta.is eftir eins marks tap fyrir Króatíu í leiknum um bronsverðlaunin í Herning í Danmörku...
Andreas Wolff, markvörður Þýskalands, skilur ekkert í gagnrýni í garð Alfreðs Gíslasonar sem ákvað að láta David Späth spila nánast allan leikinn þegar Þýskaland og Danmörk mættust í milliriðli í síðustu viku. Danir unnu þann leik og komst Späth...
Dominik Kuzmanovic, öflugur markvörður Króatíu, er ekki í leikmannahópi liðsins fyrir bronsverðlaunaleik Evrópumótsins gegn Íslandi í Herning í dag.
Eins og handbolti.is greindi frá fyrr í dag hafa veikindi herjað á lærisveina Dags Sigurðssonar í Króatíu.
Veikindi eru sögð herja á...
Spánverjarnir Andreu Marín og Ignacio Garcia dæma bronsleikinn á Evrópumótinu í handbolta á milli Íslands og Króatíu. Þetta verður þeirra þriðji leikur með íslenska landsliðinu á mótinu. Þeir dæmdu fyrsta leik Íslands á EM 2026, gegn Ítalíu og viðureignina...
Veikindi eru sögð herja á leikmenn króatíska landsliðsins sem mætir Íslandi í úrslitaleiknum um 3. sæti Evrópumótsins í handknattleik í Jyske Bank Boxen klukkan 14.15 í dag. Króatískir fjölmiðlar segja frá þessu í morgunsárið. M.a. mun markvörðurinn öflugi, Dominik...
„Ég held að Ísland eigi mjög góða möguleika þar,“ segir Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari Þýskalands í viðtali við Vísir í morgun þar sem hann er spurður um möguleika íslenska landsliðsins í viðureigninni um bronsverðlaunin á EM við Króatíu á morgun.
„Íslenska...
Danski handknattleiksmaðurinn, Simon Hald, var fluttur á sjúkrahús snemma í síðari hálfleik í viðureign Danmerkur og Íslands í kvöld. Hald fékk tvö högg á höfuðið í fyrri hálfleik og leið ekki vel í hálfleik. Nikolaj Jakobsen staðfesti við danska...
Dagur Sigurðsson, þjálfari Króatíu, viðurkenndi að Þýskaland hafi verið sterkari aðilinn þegar liðin áttust við í Jyske Bank Boxen í Herning í Danmörku í kvöld.
Þýskaland vann 31:28, var með yfirhöndina allan síðari hálfleikinn og komst mest sjö mörkum yfir...
Alfreð Gíslason, þjálfari þýska karlalandsliðsins, kvaðst ákaflega stoltur af því að hafa stýrt liðinu í úrslitaleik Evrópumótsins eftir að liðið vann 31:28 sigur á lærisveinum Dags Sigurðssonar í Króatíu í Jyske Bank Boxen í Herning í Danmörku í kvöld....