Á fundi aganefndar HSÍ á þriðjudag var einn leikmaður í Grill 66 deild kvenna og einn starfsmaður í 3. flokki kvenna úrskurðaðir í eins leiks bann.
Sara Rún Gísladóttir leikmaður Fram 2 hlaut útilokun með skýrslu vegna sérstaklega hættulegrar aðgerðar...
Átjánda umferð Olísdeildar karla í handknattleik hefst í kvöld með tveimur viðureignum, annarri í Kaplakrika og hinni í Vestmannaeyjum þangað sem leikmenn Aftureldingar mæta til leiks gegn ÍBV klukkan 19.30.
Í Kaplakrika ríkir eftirvænting fyrir viðureign kvöldsins í ljósi tíðinda...
Úlfar Páll Monsi Þórðarson átti frábæran leik fyrir RK Alkaloid þegar liðið vann einkar öruggan sigur á Eurofarm Pelister 2, 36:22, á útivelli í efstu deild Norður-Makedóníu í gærkvöldi.
Monsi skoraði átta mörk úr jafnmörgum skotum og var jafn markahæstur...
Eftir fyrsta tapið í 10 mánuði á síðasta laugardaginn komst Kadetten Schaffhausen inn á sigurbraut í A-deildinni í Sviss á ný í gærkvöldi. Kadetten Schaffhausen vann HC Kriens-Luzern í æsilega spennandi leik á heimavelli síðarnefnda liðsins, 27:26.
Óðinn Þór Ríkharðsson...
Ambros Martín þjálfari spænska kvennalandsliðsins í handknattleik hefur tekið að sér að þjálfa Al-Duhail í Doha í Katar. Martín hefur fram til þess þjálfað kvennalið, s.s. ungverska liðið Györi og Rostov-Don í Rússlandi auk þess að þjálfa kvennalandsliðs Rússlands...
„Það var bara gaman að þessu. Ég er þakklát fyrir að fá allar þessar sendingar og geta nýtt færin mín,“ sagði Rakel Oddný Guðmundsdóttir leikmaður Hauka og landsliðskona við handbolta.is í kvöld eftir að hún skoraði 13 mörk í...
„Þetta var bara skita hjá okkur,“ sagði Katrín Anna Ásmundsdóttir leikmaður Fram eftir átta marka tap liðsins fyrir Haukum, 35:27, í Olísdeild kvenna á Ásvöllum í kvöld. Framliðið var heillum horfið í síðari hálfleik og var mest 12 mörkum...
SC Magdeburg heldur sigurgöngu sinni áfram í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld þegar liðið hóf leik á ný eftir EM-hlé. Magdeburg, með Gísla Þorgeir Kristjánsson og Ómar Inga Magnússon í broddi fylkingar, lagði spútniklið Lemgo, 36:32, á...
Haukar gjörsigruðu Fram, 35:27, í viðureign liðanna í Olísdeild kvenna í handknattleik í Kuehne+Nagel-höllinni á Ásvöllum í kvöld og settust í þriðja sæti, stigi fyrir ofan ÍR sem á leik til góða. Yfirburðir Hauka voru algjörir í síðari hálfleik...
Aron Pálmarsson hefur verið ráðinn nýr aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá FH frá og með deginum í dag. Hann mun sinna því starfi út yfirstandandi tímabil, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá handknattleiksdeildar FH í kvöld.
Þetta er...
Elvar Ásgeirsson tryggði Ribe-Esbjerg annað stigið gegn GOG í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. Mosfellingurinn jafnaði metin, 30:30, þegar rétt innan við mínúta var til leiksloka. Þrátt fyrir ákafa sókn GOG þá lánaðist liðinu ekki að skora sigurmarkið...
Tryggvi Þórisson og samherjar í Elverum halda efsta sæti norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla eftir fjögurra marka sigur á Bergen Håndball, 33:29, á heimavelli í kvöld þegar átjánda umferð af 26 fór fram. Elverum er tveimur stigum á undan...
Þótt kórónuveirufaraldurinn, Covid-19, og fregnir af honum séu hættar að tröllríða fréttum þá glíma margir við afleiðingar faraldurs, jafnt fólk sem fyrirtæki. Eitt þeirra er þýska handknattleiksliðið Wölfe Würzburg sem um þessar mundir leikur í 3. deild en það...
Spánverjanum Jose Ignacio Prades entist stutt í starfi landsliðsþjálfara Serbíu í kvennaflokki í handknattleik. Hann var ráðinn í ágúst á síðasta ári og lagði upp með göfug markmið og uppbyggingu á kvennalandsliði sem mátti muna sinn fífil fegri þegar...
Fréttatilkynning frá mennta- og barnamálaráðuneyti:
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag fimm samninga með Willum Þór Þórssyni, forseta ÍSÍ, Jóhanni Steinari Ingimundarsyni, formanni UMFÍ, og Þórði Árna Hjaltested, formanni Íþróttasambands fatlaðra, sem saman leggja grunninn að uppbyggingu íþróttastarfs...