Eftir þrjú mót í röð án úrslitaleiks um gullverðlaun hefur Guillaume Gille verið leystur frá starfi landsliðsþjálfara Frakklands. Við starfinu tekur Talant Dujshebaev sem um leið verður fyrsti útlendingurinn til að stýra franska karlalandsliðinu í handknattleik síðan Þjóðverjinn Bernhard...
Ísland verður í riðli með Evrópumeisturum Spánar á Evrópumóti karla í handknattleik sem fram fer í Rúmeníu í sumar. Þetta varð ljóst þegar dregið var í riðla keppninnar í dag. Auk þess eiga landslið Austurríkis og Lettlands sæti í...
Ísland dróst í riðil með Ungverjalandi, Sviss og Svartfjallalandi í lokakeppni Evrópumóts 18 ára landsliða karla sem fram fer í Belgrad í Serbíu frá 29. júlí til 9. ágúst í sumar. Dregið var eftir hádegið í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Evrópu...
Renars Uscins, einn af lykilmönnum Alfreðs Gíslasonar hjá þýska karlalandsliðinu, hefur tjáð sig um hvað honum þykir um samfélagsmiðla og þá auknu pressu sem þeim geta fylgt.
Uscins er 23 ára gamall en hefur þrátt fyrir ungan aldur verið í...
Norski hornamaðurinn Kristian Bjørnsen hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna þegar yfirstandandi keppnistímabili með danska meistaraliðinu Aalborg Håndbold lýkur í vor. Bjørnsen er 37 ára gamall og hefur átt farsælan feril.
„Ég tel mig persónulega hafa átt langan og...
Franska handknattleikssambandið hefur boðað til blaðamannafundar í dag. Efni fundarins er framtíð Guillaume Gille landsliðsþjálfara karla. Samningur hans er að renna sitt skeið og eftir að Frakkar komust ekki í undanúrslit á EM í síðasta mánuði var Gille gagnrýndur...
Slavko Goluža, fyrrverandi landsliðsmaður og landsliðsþjálfari Króatíu, veiktist meðan hann var að stýra liði sínu RK Bjelovar í kappleik í heimalandi sínu um liðna helgi. Gekkst hann undir hjartaþræðingu í kjölfarið hvar í ljós kom stífla í kransæð.
Þegar tíu...
Slóvenska handboltakonan Ana Gros náði á laugardaginn glæsilegum áfanga að verða fimmta konan til þess að skora 1.000 mörk í Meistaradeild Evrópu. Skipar Gros sér þar með í hópi með nokkrum af stærstu stjörnum kvennahandboltans: Andrea Lekic, Jovanka Radicevic,...
Svo kann að fara að Rhein-Neckar Löwen tapi stigunum tveimur sem liðið vann í viðureign við Lemgo í þýsku 1. deildinni í handknattleik á föstudaginn. Samkvæmt óstaðfestum fregnum Mannheimer Morgen var einn leikmaður Rhein-Neckar Löwen sem tók þátt í...
Grétar Áki Andersen og Sólveig Lára Kjærnested þjálfarar 18 ára landsliðs kvenna hefur valið hóp til æfinga 3. - 8. mars. Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu en nánara skipulag mun koma inn á Abler þegar nær dregur.
Hópurinn sem Grétar...
Haukur Þrastarson og Gísli Þorgeir Kristjánsson hafa gefið flestar stoðsendingar í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Haukur er efstur og hefur verið það nánast frá fyrstu umferð. Hann hefur gefið 110 stoðsendingar í 22 leikjum. Gísli Þorgeir er nú...
Halldór Stefán Haraldsson þjálfari 20 ára landsliðs kvenna hefur valið hóp til æfinga 2.- 7.mars. Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu en nánara skipulag mun koma inn á Abler þegar nær dregur, segir í tilkynningu HSÍ.
Hópurinn sem Halldór Stefán...
Liðnar eru rúmar þrjár vikur síðan Evrópumótinu í handknattleik karla lauk. Handknattleikssamband Evrópu er öðru hverju að rifja upp eftirminnilegar stundir frá Evrópumótinu. M.a. hafa þeir sett saman myndskeið með nokkrum frábærum markvörslum landsliðsmarkvarðarins Viktors Gísla Hallgrímssonar. Eitt tilþrifanna...
Jón Ásgeir Eyjólfsson, línu- og varnarmaður Stjörnunnar, hefur skrifað undir þriggja ára samning við handknattleiksdeild Vals. Samningurinn tekur gildi 1. júní nk. Jón Ásgeir er 23 ára gamall og hefur skorað 24 mörk í 12 leikjum í Olísdeildinni á...
Landsliðsfyrirliðinn Ómar Ingi Magnússon var í liði 22. umferðar þýsku 1. deildarinnar í handknattleik í gær. Ómar Ingi lék afar vel og skoraði átta mörk, aðeins eitt úr vítakasti, og var með fullkomna skotnýtingu í 17 marka sigri Magdeburg...