Á huldu er hvort Bjarni Ófeigur Valdimarsson geti leikið með KA gegn ÍR í undanúrslitum bikarkeppninnar á Kuehne + Nagel á fimmtudagskvöld klukkan 20.15.
„Ég er með beinflís og slitið liðband í putta,“ segir Bjarni Ófeigur við Handkastið í dag....
Kjartan Vídó Ólafsson, fyrrverandi markaðsstjóri Handknattleikssambands Íslands, hefur vent kvæði sínu í kross og ákveðið að hella sér út í bæjarmálin í heimabæ sínum, Vestmannaeyjum. Vídó hefur tilkynnt um framboð í 3. – 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í...
Michael Apelgren hefur valið sænska landsliðshópinn sem mætir íslenska karlalandsliðinu í tveimur vináttuleikjum sem fram fara hér á landi 19. og 21. mars. Enn þá hefur handbolti.is ekki fengið staðfest hvar leikirnir fara fram en sænska handknattleikssambandið segir í...
Evrópumeistarar Györi Audi ETO KC, Metz Handball, Brest Bretagne Handball og CSM Bucuresti hrepptu efstu tvö sætin í hvorum riðli Meistaradeildar Evrópu í kvennaflokki sem lauk í gær. Liðin fjögur sitja yfir í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar og taka sæti...
Sara Dögg Hjaltadóttir, leikstjórnandi ÍR, er markahæsti leikmaður Olísdeildar kvenna þegar þrjár umferðir eru eftir. Hún hefur sýnt mikinn stöðugleika og verið einn besti leikmaður deildarinnar á tímabilinu.
Ísland mætir Svartfjallalandi í tveimur leikjum í undankeppni EM 2026 í byrjun...
Orri Freyr Þorkelsson skoraði þrjú mörk í nítjanda sigri Sporting Lissabon í portúgölsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Sporting lagði Avanca, 40:30, á útivelli og er efst í deildinni.
Bergischer HC, liðið sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar, tapaði fyrir...
Þýska handknattleiksliðið Blomberg-Lippe, með landsliðskonurnar Andreu Jacbosen, Díönu Dögg Magnúsdóttur og Elínu Rósu Magnúsdóttur innanborðs, lauk riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik í kvöld með jafntefli við ungverska liðið MOL Esztergom, 31:31, á heimavelli. Blomberg-Lippe hafnaði í þriðja sæti B-riðils 16-liða...
Sara Dögg Hjaltadóttir, leikstjórnandi ÍR, var á dögunum valin í A-landsliðið í fyrsta sinn fyrir tvo leiki gegn Svartfjallalandi í undankeppni EM 2026. „Líðanin er mjög góð. Mér finnst ótrúlega gaman að fá tækifærið,“ segir Sara Dögg í samtali...
SC Magdeburg náði aftur fimm stiga forskoti á toppi þýsku 1. deildarinnar í handknattleik þegar liðið vann GWD Minden með 17 marka mun í GETEC Arena í Magdeburg, 38:21. Ómar Ingi Magnússon var markahæstur leikmanna Magdeburg með átta mörk...
KA hafði sætaskipti við ÍBV í Olísdeild karla í handknattleik í dag að loknum eins marks sigri í viðureign liðanna í KA-heimilinu, 29:28. KA færðist upp í 5. sæti með 24 stig. ÍBV er stigi á eftir þegar 19...
Handknattleiksmaðurinn og Framarinn Þorsteinn Gauti Hjálmarsson er í finnska landsliðshópnum sem Svíinn Ola Lindgren valdi fyrir helgina. Finnska landsliðið mætir svartfellska landsliðinu í tveimur leikjum í undankeppni heimsmeistaramótsins 19. og 22. mars. Fyrri viðureignin verður leikin í Energia Areena...
Bjartur Fritz Bjarnason leikmaður ÍR er á meðal þeirra yngstu sem skorað hefur mark í efstu deild karla í handknattleik hér á landi. Hann skoraði sitt fyrsta mark í deildinni á föstudaginn gegn Val, 15 ára og 328 daga...
Þórður Magnús Árnason hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Gróttu til tveggja ára eða til loka tímabilsins 2028. Þórður er 19 ára gamall og leikur sem markvörður.
Þórður kemur úr öflugum 2006-árgangi hjá félaginu sem endaði í 2. sæti á...
H71 og Kyndill urðu í gær bikarmeistarar í Færeyjum. H71 lagði Kyndil örugglega, 37:28, í karlaflokki. Í kvennaflokki hrósaði Kyndill sigri með því að leggja VÍF frá Vestmanna, 29:26. Íslendingurinn Jakob Jónsson er í þjálfarateymi kvennaliðs Kyndils sem vann...
Elmar Erlingsson átti góðan leik með Nordhorn-Lingen þegar liðið gerði jafntefli við Bayer Dormagen á útivelli, 33:33, í næstefstu deild þýska handknattleiksins í gær. Elmar skoraði fimm mörk og gaf fimm stoðsendingar.
Christian Wilhelm jafnaði metin fyrir Nordhorn þegar hálf...