Þýski markvörðurinn Phil Döhler sem lék í fjögur ár við góðan orðstír með FH hefur samið við sænska úrvalsdeildarliðið Amo HK. Tekur samningurinn gildi í sumar og tekur til næstu þriggja ára, út leiktíðina í sumarbyrjun 2029.
Döhler þekkir vel...
Fyrirliði karlaliðs Víkings undanfarin ár, Jóhann Reynir Gunnlaugsson, hefur ákveðið að láta gott heita á handknattleiksvellinum eftir að hafa verið árum saman kjölfesta liðsins. Jóhann Reynir fékk blómvönd eftir síðasta heimaleik Víkings á keppnistímabilinu í síðustu viku auk þess...
Nokkur hópur yngri leikmanna var kallaður inn á æfingu landsliðsins í handknattleik karla sem fram fór fyrir hádegið í Safamýri. Ástæða þess var m.a. sú að hluti landsliðshópsins var við kappleiki með félagsliðum í gær og tókst ekki að...
Dana Björg Guðmundsdóttir landsliðskona í handknattleik meiddist í leik með Volda í norsku 1. deildinni í gær. Útlit er fyrir að hún leiki ekki fleiri leiki á keppnistímabilinu með liðinu. Þar með verður hún ekki með íslenska landsliðinu í...
Mathias Gidsel, besti leikmaður heims undanfarin þrjú ár að mati Alþjóðahandknattleikssambandsins, er kominn vel á veg með að slá markamet landa síns Mikkel Hansen í Meistaradeild Evrópu.
Hansen skoraði á sínum tíma 141 mark á einu tímabili með PSG en...
Csaba Bartha, framkvæmdastjóri ungverska handknattleiksfélagsins One Veszprém HC, hótar því að refsa leikmönnum karlaliðsins tapi það fleiri leikjum á tímabilinu.
Veszprém, sem Bjarki Már Elísson leikur með, hefur leynt og ljóst stefnt að því að vinna Meistaradeild Evrópu um árabil...
Raðað hefur verið niður leikjum í úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik. Fyrstu leikirnir fara fram miðvikudaginn 25. mars. Annars vegar mætast deildarmeistarar Vals og HK og hins vegar ÍBV og KA. Daginn eftir eigast við fyrsta sinni FH og...
Handknattleikssamband Íslands hefur sett sérstaka VIP-miða í sölu fyrir tvo vináttulandsleiki karlalandsliðsins gegn Svíþjóð síðar í vikunni. Einn VIP-miði kostar 24.900 krónur og inniheldur ýmis fríðindi, þeirra á meðal sæti næst keppnisvöllunum fyrir aftan varamannabekki liðanna á Hlíðarenda og...
Michael Apelgren, þjálfari sænska karlalandsliðsins, hefur neyðst til þess að gera nokkrar breytingar á leikmannahópi sínum fyrir tvo vináttuleiki gegn Íslandi síðar í vikunni. Alls hafa þrír öflugir leikmenn þurft að draga sig úr hópnum vegna meiðsla.
Þeir eru Jonathan...
Ísak Steinsson, markvörðurinn ungi hjá Drammen í Noregi, hefur neyðst til þess að draga sig úr íslenska A-landsliðshópnum fyrir tvo vináttulandsleiki gegn Svíþjóð síðar í vikunni. Er hann að glíma við meiðsli og getur því ekki tekið þátt í...
Þegar tvær umferðir eru óleiknar í Olísdeild kvenna á tímabilinu eru línur orðnar ansi skýrar. Þó er ekki víst hvort Stjarnan eða Selfoss falli beint niður í Grill 66 deildina og hvort þeirra fer í umspil enda barátta liðanna...
Justus Fischer, línu- og varnarmaðurinn sterki í liði Hannover-Burgdorf og þýska landsliðsins, hefur samið við THW Kiel um að leika með liðinu frá og með sumrinu 2027.
Fischer, sem er 23 ára gamall, vakti athygli fyrir vasklega framgöngu í þýska...
Dana Björg Guðmundsdóttir fyrirliði Volda skoraði þrjú mörk fyrir liðið í tíu marka sigri á Glassverket, 33:23, á útivelli í næst efstu deild norska handknattleiksins í gær. Volda færðist upp í 5. sæti deildarinnar og er tveimur stigum frá...
Orri Freyr Þorkelsson landsliðsmaður í handknattleik átti enn einn stórleikinn með Sporting Lissabon í kvöld þegar liðið vann Belenenses, 46:28, á heimavelli í 8-liða úrslitum portúgölsku bikarkeppninnar í handknattleik.
Orri Freyr skoraði 10 mörk og var markahæsti leikmaður vallarins. Bræðurnir...
SC Magdeburg heldur áfram öruggri forystu í þýsku 1. deildinni í handknattleik eftir nauman sigur á harðskeyttum leikmönnum Bergischer HC í Mitsubishi Electric Halle í Düsseldorf í dag, 27:25. Magdeburg hefur sjö stiga forskot í efsta sæti þegar níu...