- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efst á baugi

- Auglýsing -

Lárus leggst á árarnar á Seltjarnarnesi

Lárus Gunnarsson verður aðstoðarþjálfari karlaliðs Gróttu á komandi leiktíð. Einnig hyggst hann standa í marki liðsins samkvæmt tilkynningu frá félaginu í dag. Lárus var þjálfari yngri flokka Vals á síðasta vetri. Hann kom á ný til liðs við Gróttu...

Myndir: Fyrsti dagur í Podgorica

Dagurinn var vel nýttur hjá leikmönnum og þjálfurum u19 ára landsliðs kvenna sem hefur í fyrramálið keppni á Evrópumótinu í Podgorica í Svartfjallalandi. Tekin var hressileg æfing í æfingasal en ekki í keppnishöllinni þar sem fyrsti leikurinn...

Valur þarf að feta einstigi tveggja umferða til að komast í Evrópudeildina

Evrópubikarmeistarar Vals verða að mæta til leiks strax í fyrstu umferð forkeppni Evrópudeildar kvenna í handknattleik í lok september. Íslandsmeistararnir eru eitt 18 liða í fyrstu umferð. Sigurliðin níu úr fyrstu umferð komast áfram í aðra umferð forkeppninnar sem...
- Auglýsing -

Fram fer beint í riðlakeppnina – Stjarnan í forkeppni Evrópudeildar

Íslandsmeistarar Fram komast hjá forkeppni fyrir Evrópudeildina í handknattleik karla í haust. Fram tekur sæti í riðlakeppni 32-liða úrslita og er eitt 20 liða sem sitja yfir meðan forkeppnin stendur yfir.Stjarnan verður á hinn bóginn að taka þátt í...

Ísak segist klár í slaginn með TMS Ringsted

Selfyssingurinn Ísak Gústafsson er þess albúinn að hefja æfingar og keppni með danska úrvalsdeildarliðinu TMS Ringsted. Hann kastaði kveðju á stuðningsmenn liðsins á samfélagsmiðlum félagsins í morgun og segist bíða spenntur eftir að hitta nýja samherja og stuðningsmenn félagsins...

FH í aðra umferð í Evrópu – fyrsti leikur í október

FH verður eina íslenska karlaliðið sem tekur þátt í Evrópubikarkeppninni á næstu leiktíð. FH-ingar sitja yfir í fyrstu umferð keppninnar en mæta til leiks í aðra umferð í október, 64-liða úrslit. FH er í efri styrkleikaflokki þegar dregið verður...
- Auglýsing -

Selfoss með frá upphafi – Haukar byrja í annarri umferð

Selfoss tekur þátt í fyrstu umferð Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik. Bikarmeistarar Hauka, sem einnig eru skráðir til leiks, mæta til leiks í annarri umferð. Handknattleikssamband Evrópu gaf í morgun út niðurröðun í flokka Evrópubikarkeppninnar. Fyrsti leikur í lok september Selfoss, sem...

EM19: Ætlum að gera allt til þess að stríða þeim

U19 ára landsliðið í handknattleik kvenna kom til Podgorica í Svartfjallalandi síðdegis í gær eftir strangt ferðalag frá Íslandi. Á morgun hefst þátttaka í Evrópumótinu með viðureign við danska landsliðið. Eftir það tekur við leikur gegn Litáen á fimmtudag...

Öflug félög í Frakklandi leggja meiri áherslu á kvennahandknattleik

Nokkur af stærstu handknattleiksfélögunum í Frakklandi, eru nú að leggja meiri áherslu á kvennahandbolta. Félög eins og USAM Nîmes, Montpellier Handball og Chambéry Savoie Mont Blanc Handball hafa stígið stór skref til að hleypa auknum krafti í kvennaliðin og...
- Auglýsing -

Nunes tekur við þjálfun Harðar

Portúgalinn Pedro Nunes hefur tekið við þjálfun karlaliðs Harðar í handknattleik en liðið leikur í Grill 66-deildinni. Nunes er ráðinn til þriggja ára en frá þessu var sagt á Facebook-síðu Harðar í gær. Nunes tekur við að Ungverjanum Endre...

Molakaffi: Vasile, Oftedal, Kopyshynskyi, Skube, Kudinov

Rúmeninn Adrian Vasile tekur við sem þjálfari rúmenska meistaraliðsins CSM Búkarest af Helle Thomsen sem hætti hjá félaginu í síðustu viku til þess að einbeita sér alfarið að þjálfun danska kvennalandsliðsins. Vasile þekkir vel til hjá félaginu því hann...

FH-ingar heiðruðu Gísla Þorgeir í Kaplakrika

Fimleikafélag Hafnarfjarðar, FH, heiðraði einn af sínum dáðustu sonum, Gísla Þorgeir Kristjánsson, þegar FH og Stjarnan mættust í Bestu deild karla í knattspyrnu á Kaplakrikavelli. Ástæða þess að FH-ingar kölluðu Gísla Þorgeir fram á Kaplakrikavöll fyrir leikinn er sú að...
- Auglýsing -

Þjálfari Aftureldingar er hættur – er að flytja til Svíþjóðar

Jón Brynjar Björnsson þjálfari kvennaliðs Aftureldingar hefur sagt starfi sínu lausu. Ástæða þess er breyting á persónulegum högum hans eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Aftureldingu. Jón Brynjar ætlar að fylgja unnustu sinni til Svíþjóðar þar sem hún...

Andstæðingar Hauka sektaðir – aganefnd EHF sendir út nokkra gíróseðla

Bosníska meistaraliðið HC Izvidac, sem sló út Hauka í átta liða úrslitum Evrópubikarkeppni karla í handknattleik síðla vetrar hefur verið sektað um 7.500 evrur, jafnvirði 910 þúsund kr, af Handknattleikssambandi Evrópu, EHF. Ríflega helmingur upphæðarinnar, 4.000 evrur, er vegna...

Nýr samningur liggur á borðinu – veltir framhaldinu fyrir sér

Óvissa ríkir hvort fyrirliði Fram, Magnús Øder Einarsson, leiki áfram með liðinu á næstu leiktíð. Samningur hans við Fram er runninn út og nýr samningur liggur á borðinu. Magnús segir að spurningin liggi hjá sér, hvort hann hrökkvi eða...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -