- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efst á baugi

- Auglýsing -

Þórir tekur við búi af Halldóri Jóhanni

Þórir Ólafsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handknattleik og atvinnumaður í Þýskalandi og í Póllandi um árabil, hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Selfoss í handknattleik. Hann tekur við af Halldóri Jóhanni Sigfússyni. Halldór Jóhann hefur verið ráðinn þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins Tvis...

U20 – Myndsyrpa, Ísland – Serbía

Ísland og Serbía skildu með skiptan hlut í fyrsta leik landsliða þjóðanna á Evrópumeistaramóti karla í handknattleik skipuðum leikmönnum 20 ára og yngri, 28:28, í Senhora da Hora, Matosinhos, við Porto síðdegis í dag. Íslenska landsliðið var þremur mörkum...

U20: Tókst að bjarga sér úr slæmri stöðu og ná stigi

Íslenska landsliðið í handknattleik karla, skipað leikmönnum 20 ára og yngri, varð að gera sér að góðu jafntefli, 28:28, í fyrsta leik sínum á Evrópumeistaramótinu í Porto í dag. Eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik, 18:15,...
- Auglýsing -

U20: Sögulegur sigur Færeyinga á herraþjóðinni

Færeyingar unnu sögulegan sigur í dag þegar landslið þeirra í handknattleik karla, skipað leikmönnum 20 ára og yngri, vann danska landsliðið í fyrstu umferð á Evrópumeistaramótinu sem hófst í Porto í morgun, 33:32. Jafnt var að loknum fyrri hálfleik,...

Þriggja marka sigur á Færeyingum í hörkuleik

U16 ára landslið Íslands vann landslið Færeyja í sama aldursflokki með þriggja marka mun í viðureign liðanna á Opna Evrópumótinu í handknattleik í Gautaborg í morgun, 22:19, eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik, 14:11. Þetta var sjötti...

Myndasyrpa: Íslendingar á Partille cup

Hið árlega Partille cup handknattleiksmót hófst í Gautaborg á mánudaginn og stendur yfir fram á sunnudag. Á að giska 600 leikmenn, þjálfarar og fararstjórar eru á mótinu að þessu sinni frá 12 félögum sem senda 53 lið til leiks....
- Auglýsing -

U20: Markmiðið er fara á toppinn

„Hópurinn er þéttur og góður enda höfum við kynnst mjög vel síðasta árið,“ sagði Símon Michael Guðjónsson einn leikmanna U20 ára landsliðsins í handknattleik sem tekur þátt í Evrópumótinu sem hefst í Porto í Portúgal í dag. Símon og...

Molakaffi: Reichmann, Nielsen, Viktor Gísli, Ferreira, Faruk

Tobias Reichmann, fyrrverandi landsliðsmaður Þýskalands í handknattleik, hefur gengið til liðs við TV Emsdetten sem féll í 3. deild í vor. Síðustu fimm árin hefur Reichmann leikið með MT Melsungen. Áður hefur hægri hornamaðurinn m.a. leikið með Kielce í...

Skildu með skiptan hlut frá leiknum við Letta

Eftir stórsigur á landsliði Eistlands í fyrri leiknum í dag á Opna Evrópumótinu í handknattleik kvenna, skipað leikmönnum 16 ára og yngri, þá gerði íslenska landsliðið jafntefli við landslið Lettlands í kvöld, 17:17. Lettar voru marki yfir að loknum...
- Auglýsing -

U20: Getum náð mjög langt

„Þetta er annað stórmótið okkar saman því flestir okkar voru í hópnum á EM 19 ára í fyrrasumar. Nú erum við með Tryggva Þórisson til viðbótar. Hann var meiddur í fyrra. Það munar um að vera með stóran línumann...

U20: Taska fararstjórans tapaðist – engar tafir á undirbúningi

U20 ára landslið karla í handknattleik hefur keppni á Evrópumeistaramótinu í handknattleik í Porto á morgun. Íslenski hópurinn kom til Porto seint í gærkvöld eftir nokkrar tafir en m.a. missti hópurinn af einu tengiflugi vegna öngþveitis á flugvöllum Evrópu....

Halldór Jóhann er á leiðinni til Danmerkur

Halldór Jóhann Sigfússon, sem þjálfað hefur karlalið Selfoss undanfarin tvö ár, er að hverfa frá störfum hjá félaginu og flytja til Danmerkur, eftir því sem Visir.is segir frá í dag samkvæmt heimildum. Heimildir handbolta.is herma að Halldór Jóhann verði annar...
- Auglýsing -

Sautján marka sigur á Eistlandi

Stelpurnar í U16 ára landsliðinu burstuðu lið Eistlands í morgun á Opna Evrópumótinu í handknattleik sem stendur yfir í Gautaborg, 27:10. Íslensku stelpurnar höfðu mikla yfirburði í leiknum frá upphafi til enda. M.a. þá skoraði lið Eistlands aðeins fjögur...

Sænskur markvörður semur við lið Selfoss

Sænski handknattleiksmarkvörðurinn Cornelia Hermansson hefur samþykkt að ganga til liðs við Selfoss og leika með liði félagsins í Olísdeild kvenna næstu tvö ár. Hermansson kemur til Selfoss frá Kärra HF en einnig hefur hún verið í herbúðum Önnereds HK...

Frá Eyjum í Hafnarfjörð

Handknattleikskonan úr ÍBV, Aníta Björk Valgeirsdóttir, hefur skrifað undir samning við handknattleiksdeild FH og mun leika með liðinu í Grill66 -deildinni næsta vetur samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu frá FH eldsnemma í morgun. Aníta Björk, sem hefur verið...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -