- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efst á baugi

- Auglýsing -

Andri til Kristianstad

Andri Erlingsson leikmaður ÍBV hefur skrifað undir þriggja ára samning við sænska úrvalsdeildarliðið IFK Kristianstad. Hann fer til félagsins í sumar. Andri lék fyrst með ÍBV 16 ára gamall en hefur síðan vaxið fiskur um hrygg og er nú...

Mikilvægt er að tryggja sér miða strax í milliriðla EM

Fréttatilkynning frá HSÍ vegna leikja í milliriðli á EM karla í handknattleik. Það er stutt í milliriðil og miðar fara hratt Ísland tryggði sér tvö stig upp í milliriðil með sigri á Ungverjalandi í gærkvöld. Mikill áhugi hefur verið meðal...

Landslið Íslands á EM 2026 – strákarnir okkar

Átján leikmenn eru í íslenska landsliðinu sem tekur þátt í Evrópumótinu sem fram fer í Danmörku, Noregi og Svíþjóð í janúar 2026. Helstu upplýsingar um þá er að finna hér fyrir neðan. Fyrsti leikur íslenska landsliðsins verður við Ítalíu...
- Auglýsing -

Innkoma Einars Þorsteins var alveg ótrúleg

„Innkoma Einars Þorsteins var alveg ótrúleg. Hann á skilið mikið hrós. Einar hafði ekki tekið þátt í fundum fyrir leikinn við Ungverja. Hann var örugglega ekki með allt á hreinu hvað við ætluðum að gera,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson...

Sætur sigur vegna þess að þetta var stál í stál

„Allir sigrar eru sætir en þessi var sætari af því að leikurinn var stál í stál frá upphafi,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik karla í samtali við handbolta.is eftir sigurinn á Ungverjum, 24:23, í lokaumferð riðlakeppni Evrópumótsins...

Myndasyrpa: Glæsileg frammistaða gegn Ungverjum

Sigur Íslands gegn Ungverjalandi í lokaumferð F-riðils Evrópumóts karla í Kristianstad Arena í kvöld var einkar sætur. Ungverjar hafa reynst Íslendingum erfiðir í gegnum árin og vannst fjórði sigurinn í níundu viðureign þjóðanna á Evrópumótum í kvöld. Ungverjagrýlan kveðin niður í...
- Auglýsing -

Myndasyrpa: Elliði Snær faðmaði formann HSÍ

Elliði Snær Viðarsson ærðist af kæti þegar sigurinn á Ungverjum var í höfn. Um leið og lokaflautið gall tók hann stefnuna til formanns HSÍ, Jóns Halldórssonar, þar sem hann sat við hliðarlínuna ásamt Ingu Sæland íþróttamálaráðherra. Elliði Snær stökk...

Spiluðum frábæra vörn í seiglusigri

„Þetta var bara seiglusigur, vinnusigur. Það var fínt að klára þetta. Það var svona aðalatriðið,“ sagði Ómar Ingi Magnússon við handbolta.is eftir frækinn 24:23 sigur á Ungverjalandi í lokaumferð F-riðils Evrópumótsins í Kristianstad í kvöld. Leikurinn einkenndist af gífurlegri baráttu,...

Elvar Örn meiddist – óttast það versta

Sigurinn á Ungverjum kann að hafa verið íslenska landsliðinu dýr vegna þess að Elvar Örn Jónsson meiddist á vinstri handlegg undir lok fyrri hálfleiks og kom ekkert meira við sögu. Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari sagði við handbolta.is eftir leikinn...
- Auglýsing -

Ævintýri Færeyja er á enda

Slóvenía lagði Færeyjar að velli, 30:27, í lokaumferð D-riðils Evrópumóts karla í Unity Arena í Bærum í Noregi í kvöld. Slóvenía vann riðilinn með fullu húsi stiga en Færeyjar sitja eftir með sárt ennið og eru úr leik. Slóvenía tekur...

Ungverjagrýlan kveðin niður í mögnuðum sigri Íslands

Viktor Gísli Hallgrímsson átti stórbrotinn leik í marki Íslands þegar liðið vann glæsilegan sigur á Ungverjalandi, 24:23, í lokaumferð F-riðils Evrópumóts karla í Kristianstad Arena í kvöld. Viktor Gísli varði 19 skot, 47% hlutfallsmarkvörslu. Einnig átti Gísli Þorgeir Kristjánsson...

Portúgal lagði heimsmeistarana og vann riðilinn

Portúgal tryggði sér sigur í B-riðli Evrópumóts karla með því að leggja heimsmeistara Danmerkur að velli, 31:29, í lokaumferð riðilsins í Jyske Bank Boxen í Herning í Danmörku í kvöld. Portúgal vann því riðilinn með fimm stigum og tekur með...
- Auglýsing -

Myndskeið: Kom fallegasta mark mótsins gegn Íslandi?

Ekki er loku fyrir það skotið að fallegasta mark Evrópumóts karla hafi komið þegar í fyrstu umferð og það gegn Íslandi. Hægri hornamaðurinn Leo Prantner skoraði gullfallegt mark þegar hann lagaði aðeins stöðuna í 39:26-tapi Ítalíu fyrir Íslandi í fyrstu...

Rúmlega 24 ára landsliðsferli lauk í kvöld

Mihai Popescu, markvörður rúmenska landsliðsins, lék í kvöld sinn síðasta landsleik á ferlinum. Landsliðsferillinn hefur spannað rúm 24 ár. Popescu er fertugur og lék sinn fyrsta landsleik snemma á öldinni, árið 2001. Þá var hann aðeins 16 ára gamall. Stórsigur Sviss...

Stórsigur Sviss og Færeyjar þurfa að treysta á sig sjálfar

Sviss vann auðveldan sigur á Svartfjallalandi, 43:26, í lokaumferð D-riðils Evrópumóts karla í Unity Arena í Bærum í kvöld. Sviss á því möguleika á því að tryggja sér sæti í milliriðli. Með sigrinum fór Sviss nefnilega upp í annað sæti...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -