Katla María Magnúsdóttir átti stórleik fyrir Holstebro Håndbold þegar liðið tapaði með minnsta mun, 28:27, fyrir Roskilde Håndbold í dönsku B-deildinni í dag. Holstebro var þegar búið að tryggja sér sigur í deildinni og spilar því í úrvalsdeildinni á...
Ekkert lát er á sigurgöngu Elínar Klöru Þorkelsdóttur og samherja í IK Sävehöf í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Í dag sóttu leikmenn IK Sävehof tvö stig í greipar VästeråsIrsta HF í keppnishöllina í Västerås. Lokatölur, 28:24, í næstsíðasta deildarleik...
Ísrael komst áfram úr forkeppni heimsmeistaramóts karla í handknattleik eftir að hafa lagt landslið Georgíu samanlagt með eins marks mun, 60:59, í tveimur leikjum sem fram fóru í Georgíu í dag og á fimmtudaginn. Ísraelska landsliðið mætir spænska landsliðinu...
Leikstjórnandinn Gísli Rúnar Jóhannsson hefur framlengt samning sinn við Aftureldingu til næstu tveggja ára. Hann kom til Aftureldingar frá Haukum fyrir þremur árum.
Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá Gísla Rúnari síðustu árin. Í tilkynningu Aftureldingar í dag kemur...
Sömu leikmenn leika fyrir Íslands hönd í síðari viðureign Íslands og Svíþjóðar í Kaplakrika í dag og tóku þátt í fyrri vináttuleiknum í N1-höllinni á fimmtudagskvöld. Janus Daði Smárason verður áfram utan hópsins vegna axlarmeiðsla sem hafa plagað hann...
Alþjóðlegt handknattleiksmót, með þátttöku evrópskra félagsliða, sem fram átti að fara í Bandaríkjunum í sumar fer fram í Evrópu. Óvíst er hins vegar hvar í álfunni verður leikið. Ástæður breytinganna eru m.a. sagðar vera vaxandi stirðleiki í samskiptum Evrópuríkja...
Vegna ófærðar hefur leik Fram og KA/Þórs sem fram átti að fara í dag í síðustu umferð Olísdeildar kvenna verið frestað til morguns. Stefnt er á að leikurinn fari fram í Lambhagahöll Framara og að flautað verði til leiks...
Viðureign Vals og ÍBV í síðustu umferð Olísdeildar kvenna hefur verið seinkað um viku og fer fram laugardaginn 28. mars ef veður leyfir. Þetta kemur fram í leikjadagskrá á vef HSÍ. Aðrir leikir 21. og síðustu umferðar Olísdeildar kvenna...
Þórsarar á Akureyri eru byrjaðir að styrkja lið sitt fyrir næsta keppnistímabil í Olísdeild karla. Í dag var tilkynnt að liðlega tvítugur Dani, Bertram Simonsen, gangi til liðs við félagið í sumar. Simonsen leikur nú með Lemvig-Thyborøn Håndbold og...
Tvö öflugustu landslið Evrópumótsins í handknattleik karla í janúar, Evrópumeistarar Danmerkur og silfurlið Þýskalands, mætast tvisvar í vináttuleikjum 15. og 17. maí. Fyrri leikurinn fer fram í Royal Arena í Kaupmannahöfn en sá síðari í Lanxess Arena í Köln...
Bjarni Ófeigur Valdimarsson, einn besti leikmaður Olísdeildar karla, hefur framlengt samning sinn við KA til næstu tveggja ára, út leiktíðina vorið 2028. Þar með hefur endi verið bundinn á vangaveltur um hvað taki við Bjarna Ófeigi.
Bjarni Ófeigur, sem er...
Breki Hrafn Árnason markvörður Fram hefur æft með karlalandsliðinu í handknattleik síðustu daga. Hljóp hann í skarðið fyrir kollega sinn, Ísak Steinsson, sem meiddist á sunnudaginn og varð að draga sig út úr landsliðshópnum fyrir leikina við sænska landsliðið....
Alþjóða handknattleikssambandið staðfesti í gær að íslenska landsliðið í handknattleik karla mun leika í Magdeburg í riðlakeppni heimsmeistaramótsins sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári. Þá verða 20 ár liðin frá því að íslenska landsliðið lék...
Strax að loknum landsleik Íslands og Svíþjóðar í handknattleik karla í N1-höllinni á Hlíðarenda í gærkvöld hittu leikmenn íslenska landsliðsins unga jafnt sem eldri stuðningsmenn. Landsliðsmenn árituðu myndir, treyjur, skó og hvað eina annað sem hægt var að hripa...
Landsliðsmaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson samdi í vikunni við þýska félagið TSV Hannover-Burgdorf og skrifaði undir þriggja ára samning sem tekur gildi í sumar.
Hann yfirgefur þá norska félagið Kolstad IL eftir fjögurra ára dvöl. Kolstad frá Þrándheimi á í miklum...