- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Heilt yfir vorum við alveg hrikalega góðir

„Tímabilið var alveg magnað en um leið þurftum við að hafa mikið fyrir árangrinum. Ekki er aðeins um að ræða vinnu núna heldur sem hefur verið undanfarin ár,“ segir Einar Jónsson þjálfari Íslands- og bikarmeistara Fram í handknattleik karla....

Þjálfaramál Olísdeildar karla í höfn – helmingur liðanna gerði breytingar

Eftir KA tilkynnti í gær að hafi ráðið Andra Snæ Stefánsson þjálfara karlaliðs félagsins fyrir næstu leiktíð er komið á hreint hvaða þjálfarar stýra liðunum 12 sem leik í Olísdeild karla á næstu leiktíð. Helmingur liðanna verður með nýja...

Nítján lið sækjast eftir sextán sætum

Nítján félög sækjast eftir 16 sætum í Meistaradeild kvenna í handknattleik á næsta keppnistímabili. Af þeim eiga lið níu félaga vís sæti vegna landskvóta. Tíu félög verða að bíða niðurstöðu mótanefndar Handknattleikssambands Evrópu, EHF, hvort þeim verður úthlutað keppnisrétti....
- Auglýsing -

Molakaffi: Siewert, Olympiakos, Spánn, Heieren, RD Slovan

Jaron Siewert þjálfari Füchse Berlin hefur verið valinn þjálfari ársins í þýsku 1. deildinni í fyrsta sinn. Lið hans hefur verið frábært í deildinni á tímabilinu og situr í efsta sæti fyrir lokaumferðina á morgun. Olympiakos vann AEK Aþenu í...

Eins marks sigur hjá 17 ára landsliðinu í Runavík

Piltarnir í 17 ára landsliðinu í handknattleik unnu færeyska jafnaldra sína í fyrstu umferð á Nordic Open-mótinu í Høllinni í Runavík í kvöld, 29:28. Færeyingar voru marki yfir í hálfleik, 16:15. Næsti leikur á mótinu verður á morgun í...

Hreppa silfurverðlaun annað árið í röð

Annað árið í röð verða Hannes Jón Jónsson og liðsmenn hans í Alpla Hard að gera sér silfurverðlaun að góðu í úrslitakeppninni í austurríska handknattleik. Alpla Hard tapaði öðru sinni í kvöld fyrir Krems í úrslitarimmunni um meistaratitilinn, 25:23....
- Auglýsing -

Andri Snær tekur við þjálfun KA

Andri Snær Stefánsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs KA í Olísdeild karla. Hann tekur við af Halldóri Stefáni Haraldssyni sem hætti í vor eftir tveggja ára starf. Andri Snær var aðstoðarþjálfari KA-liðsins á síðustu leiktíð og ætti þar af...

Anton Gylfi dómari ársins í 17. sinn – styttist í met Stefáns

Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson eru dómarapar ársins í Olísdeildunum á nýliðnu keppistímbili. Hlutu þeir viðurkenningu á uppskeruhátíð Handknattleikssambands Íslands í gær. Þetta er um leið í 17. sinn á síðustu 18 árum sem Anton er annar hluti...

Gidsel bætti eigið markamet í þýsku deildinni

Mathias Gidsel heldur áfram að fra á kostum með þýska liðinu Füchse Berlin. Á gærkvöld bætti hann eigin markamet í þýsku 1. deildinni þegar hann skoraði sitt 264. mark í opnum leik í deildinn á tímabilinu í gærkvöld. Gidsel sló...
- Auglýsing -

Verður upphafsleikur EM 2028 á Bernabéu með metfjölda áhorfenda?

Francisco Blázquez, forseti spænska handknattleikssambandsins, á sér þann draum að upphafsleikur Evrópumóts karla í handknattleik 2028 fari fram á Estadio Santiago Bernabéu í Madríd, heimavelli knattspyrnuliðsins Real Madrid að viðstöddum allt að 80 þúsund áhorfendum. „Ég vil að opnunarleikurinn fari...

Lokahóf: Hannes og Perla Ruth best – Þorsteinn, Eva og Árni heiðruð

Líf og fjör var þegar handknattleiksdeild Selfoss gerði upp liðið keppnistímabil í Hvíta Húsinu á dögunum. Dagskráin var með hefðbundnu sniði undir stjórn Ingvars Arnar Ákasonar. Verðlaun og viðurkenningar voru veitt, glæsilegt steikarhlaðborð frá Hvíta Húsinu, skemmtidagskrá meistaraflokks karla,...

Molakaffi: Grøndahl, Jagurinovski, Danmörk, Av Teigum, Groetzki, Drux

Eftir nokkurt þref hefur norski landsliðsmaðurinn Tobias Grøndahl verið seldur frá danska liðinu GOG til Füchse Berlin. Hermt er að söluverðið séu 500 þúsund evrur sem er sama upphæð og Flensburg lagði út fyrir Simon Pytlick þegar hann fór...
- Auglýsing -

Ekki tókst Íslendingum að slá meistaraefnin út af laginu

Ekki tókst Íslendingaliðinu Gummersbach að stöðva meistaraefni Füchse Berlin í kvöld þegar liðin mættust í næst síðustu umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik í Max Schmeling-Halle í Berlin. Berlínarbúarnir unnu með 10 marka mun í miklum markaleik, 45:35, og...

Bergrós Ásta best – KA/Þór hlaut fimm verðlaun

Bergrós Ásta Guðmundsdóttir unglingalandsliðskona og leikmaður KA/Þórs var besti og efnilegasti leikmaður Grill 66-deildar á síðustu leiktíð. Hún var verðlaunuð á uppskeruhátíð HSÍ síðdegis. KA/Þór, sem vann Grill 66-deildina með nokkrum yfirburðum hreppti fimmverðlaun, af þeim sex sem veitt voru...

Þórsarar fengu þrenn verðlaun í lokahófi HSÍ

Þórsarinn Oddur Gretarsson var valinn besti leikmaður Grill 66-deildar karla á nýliðnu keppnistímabili. Oddur, sem var í sigurliði deildarinnar, hreppti einnig hnossið í kjöri á besta sóknarmanni Grill 66-deildar. Verðlaun voru afhent í lokahófi HSÍ síðdegis til þeirra sem þóttu...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -