Nicolej Krickau sem sagt var upp starfi þjálfara Flensburg á laugardaginn verður væntanlega ekki lengi án atvinnu. Krickau segist hafa fengið fjölda tilboða um þjálfun. Töluverðar líkur eru taldar á að Anders Eggert aðstoðarþjálfari Flensburg verði ráðinn aðalþjálfari liðsins....
Efsta lið þýsku 1. deildarinnar handknattleik karla, MT Melsungen, var sterkara á endasprettinum en leikmenn Gummersbach í kvöld og fór heim með stigin tvö sem leikið var um. Átta mínútum fyrir leikslok var staðan jöfn í Schwalbe-Arena í Gummerbach,...
Einar Bragi Aðalsteinsson og félagar í IFK Kristianstad gerðu sér lítið fyrir og lögðu efsta lið sænsku úrvalsdeildarinnar, Ystads IF, 30:28, í 15. umferð deildarinnar í kvöld en leikið var í Ystad. Var þetta aðeins annað tap Ystads-liðsins á...
Daninn Stefan Madsen tekur við þjálfun franska meistaraliðsins Paris Saint-Germain (PSG) næsta sumar þegar Raúl Gonzalez lætur af störfum og snýr sér að þjálfun serbenska karlalandsliðsins. Madsen er nú við stjórnvölin hjá egypska liðinu meistaraliðinu Al Ahly en áður...
Fréttatilkynning frá Handboltaskólanum
Handboltaskólinn er fyrir íslenska krakka á aldrinum 13-16 ára og er þetta þrettánda árið sem skólinn er haldinn. Skólinn er bæði fyrir stráka og stelpur.
Ferðin næsta sumar verður 22. – 29.júlí. Skólinn kostar um kr. 235.000 og...
Camilla Herrem lék sinn síðasta landsleik á sunnudagskvöldið þegar Noregur vann Danmörk í úrslitaleik Evrópumóts kvenna í handknattleik. Herrem er 38 ára gömul og hefur leikið með norska landsliðinu í 18 ár, alls 332 landsleiki og skorað í þeim...
Engin þjóð sótti um að vera gestgjafi Evrópumóts kvenna í handknattleik árið 2030 en víst er að EM kvenna árið 2032 fer fram í Danmörku, Þýskalandi og Póllandi frá 1. til 19. desember. Handknattleikssamband Evrópu, EHF, útnefndi mótshalda EM...
Hér fyrir neðan er myndskeið með samantekt frá úrslitaleik Noregs og Danmerkur um á Evrópumóti kvenna í handknattleik sem fram fór í gær. Noregur vann leikinn með yfirburðum, 31:23, og varð Evrópumeistari í tíunda skipti, þar af í sjötta...
Hér fyrir neðan er myndskeið með samantekt frá viðureign Ungverjalands og Frakklands um 3. sætið á Evrópumóti kvenna í handknattleik sem fram fór í gær. Ungverjaland vann leikinn, 25:24, og hreppti sín fyrstu verðlaun á Evrópumóti í 12 ár.
https://www.youtube.com/watch?v=8ouWbfUeuSQ
Áhorfspartý sem Klefinn.is og HSÍ og A-landslið kvenna stóðu fyrir vegna úrslitaleiks EM kvenna í handknattleik í Minigarðinum í gær tókst afar vel. Um 120 börn og fullorðnir mættu og skemmtu sér afar vel ásamt meirihluta leikmanna kvennalandsliðsins.
Sjá einnig:...
Óðinn Þór Ríkharðsson átti stórleik í gær þegar Kadetten Schaffhausen vann HSC Suhr Aarau, 31:29, á útivelli í svissnesku A-deildinni í gær. Óðinn Þór skoraði níu mörk í 10 skotum. Eitt markanna skoraði hann úr vítakasti. Kadetten Schaffhausen er...
Jesper Jensen landsliðsþjálfari Danmerkur sýndi einstakt drenglyndi þegar hann þakkaði Þóri Hergeirssyni landsliðsþjálfara Noregs fyrir 15 ára starf eftir að Noregur vann Danmörku í úrslitaleik EM kvenna í kvöld. Jensen færði Þóri gjöf að skilnaði og sagði hann hafa...
Áhorfspartý sem Klefinn.is og HSÍ og A-landslið kvenna stóðu fyrir vegna úrslitaleiks EM kvenna í Minigarðinum tókst afar vel. Um 120 börn og fullorðnir mættu og skemmtu sér afar vel ásamt meirihluta leikmanna kvennalandsliðsins.
„Ég er alsæl,“ segir Silja Úlfarsdóttir...
„Það er ástæða fyrir því að við vorum í efri styrkleikaflokki en þær í neðri og við munum gera okkar allra besta til þess að vinna leikina, það er okkur mjög mikilvægt,“ segir Steinunn Björnsdóttir landsliðskona í handknattleik í...
Báðar viðureignir Íslands og Ísraels í umspili heimsmeistaramóts kvenna í handknattleik fara fram hér á landi. Leikið verður miðvikudaginn 9. apríl og fimmtudaginn 10. apríl. „Ég get staðfest það að báðir leikirnir verða heima,“ sagði Róbert Geir Gíslason framkvæmdastjóri...