- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Gummersbach fór illa með FH-inga á afmælisdaginn

FH-ingar fengu slæma útreið hjá þýska liðinu Gummersabach í viðureign liðanna í Kaplakrika í kvöld í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik karla og það á sjálfan 95 ára afmælisdag Fimleikafélags Hafnarfjarðar. Nítján mörk skildu liðin að þegar frá var horfið...

Mögnuð sýning Björgvins Páls skilaði stigi gegn Porto

Björgvin Páll Gústavsson átti stórleik í síðari hálfleik gegn Porto í kvöld. Hann fór hreinlega hamförum í síðari hálfleik, varði 13 skot, 55%, auk þess að skora þrjú mörk í 27:27 jafntefli Valsmanna sem fengu þar með sitt fyrsta...

Valur mætir Bertu og Jóhönnu – Haukar til Króatíu

Íslandsmeistarar Vals í handknattleik kvenna mætir Íslendingaliðinu Kristianstad HK í 32-liða úrslitum Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik. Fyrri leikurinn verður á heimavelli Vals 9. eða 10. nóvember og síðari viðureignin ytra viku síðar ef liðin kjósa að leika heima og...
- Auglýsing -

Gjaldþrot blasir við þreföldum Evrópumeisturum

Rekstur norska meistaraliðsins Vipers Kristiansand er kominn að fótum fram, ef svo má segja. Félagið segir frá því í tilkynningu í morgun að það vanti 25 milljónir norskra króna fyrir lok vikunnar, jafnvirði um 320 milljóna íslenskra króna, til...

Stemningin í kringum þennan viðburð drífur alla með

„Ég held að við séum bara nokkuð góðir,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari Vals þegar handbolti.is heyrði í honum hljóðið fyrir handboltaveisluna í Kaplakrika í kvöld þegar sá sögulegi viðburður á sér stað að Valur og FH sameinast um...

Allir eru að gera sitt besta til að vera klárir í bátana

Sigursteinn Arndal þjálfari FH reiknar með að stilla upp sínu allra sterkasta liði gegn Gummersbach í annarri umferð Evrópudeildarinnar í Kaplakriki í kvöld á 95 ára afmæli félagsins. „Ég get fullvissað fólk um að allir eru að gera sitt...
- Auglýsing -

Molakaffi: Guðmundur, Arnór, Einar, Elvar, Ágúst, Elín

Guðmundur Þórður Guðmundsson og liðsmenn hans hjá Fredericia HK færðust upp í þriðja sæti dönsku úrvalsdeildarinnar í gær með sigri á Ribe-Esbjerg, 31:26, á útivelli í gær. Arnór Viðarsson og Einar Þorsteinn Ólafsson komu ekki mikið við sögu í...

Róbert lyfti Evrópubikar – 10 Íslendingar hjá Gummersbach

Róbert Gunnarsson varð Evrópumeistari tvö ár í röð með Gummersbach. EHF-meistari 2009 og Evrópumeistari bikarhafa 2010. Þá var hann fyrirliði liðsins og lyfti Evrópubikarnum. Kristján Arason var fyrsti Íslendingurinn til að vera í herbúðum  Gummersbach og varð hann Þýskalandsmeistari með...

Viggó mætti til leiks á ný – sjö marka sigur Leipzig

Viggó Kristjánsson lék á ný með SC DHfK Leipzig í kvöld eftir nærri mánaða fjarveru vegna meiðsla. Seltirningurinn lét til sín taka, skoraði fimm mörk og átti sex stoðsendingar í sjö marka sigri Leipzig á HC Erlangen, 32:25, á...
- Auglýsing -

Þórsarar unnu Selfyssinga með átta marka mun

Þór færðist upp að hlið Víkings og Fram2 í eitt þriggja efstu sæta Grill 66-deildar karla í kvöld með því að tryggja sér tvö stig til viðbótar að launum fyrir að leggja Selfoss með átta marka mun, 34:26, í...

Apelgren stýrir sænska landsliðinu samhliða þjálfun Pick Szeged

Michael Apelgren var í dag ráðinn landsliðsþjálfari Svíþjóðar í handknattleik karla. Hann tekur við af Glenn Solberg sem hætti fyrirvaralaust í síðasta mánuði eftir hálft fimmta ár í starfi og prýðilegan árangur. Apelgren þekkir vel til starfsins því hann...

Jón Hermann skoraði fyrst gegn Gummersbach

 Valur hefur tvisvar leikið gegn Gummersbach í Evrópukeppni og Víkingur og Fram einu sinni. * Valur lék sinn fyrsta Evrópuleik gegn Gummersbach í Laugardalshöllinni í Evrópukeppni meistaraliða 1973-1974.  Jón Hermann Karlsson varð fyrstur Valsmanna til að skora í Evrópuleik; gegn...
- Auglýsing -

Kolstad í undanúrslit þriðja árið í röð

Kolstad komst í undanúrslit í norsku bikarkeppninni í handknattleik karla í dag eftir öruggan sigur á Nærbø, 29:25, á heimavelli. Kolstad er þar með komið skrefi nær því að vinna bikarkeppnina þriðja árið í röð. Að vanda létu íslensku handknattleiksmennirnir...

Stuttur stans hjá Porto – æfa ekki í Kaplakrika

Leikmenn Porto hafa stuttan stans hér á landi vegna leiksins gegn Val í Evrópudeildinni á morgun í Kaplakrika. Liðið verður aðeins í 23 stundir hér á á landi og ljóst að hvorki verður farinn Gullni hringurinn né helstu baðlón...

Bikarmeistararnir mæta Gróttu í 16-liða úrslitum

Bikarmeistarar Vals í handknattleik karla mæta Gróttu í 16-liða úrslitum Poweradebikarsins en til stendur að leikir 16-liða úrslita fari fram sunnudaginn 17. nóvember. Valur fær heimaleik gegn Gróttumönnum sem hafa farið mikinn í upphafi leiktíðar í Olísdeildinni. Dregið var í...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -