- Auglýsing -
- Auglýsing -

Grill 66-kvenna

- Auglýsing -

Tinna Ósk áfram hjá HK

Tinna Ósk Gunnarsdóttir, leikmaður HK, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Í tilkynningu frá handknattleiksdeild HK kemur ekki fram til hve langs tíma hún samdi. Tinna Ósk verður þó að minnsta kosti áfram samningsbundin HK á næsta tímabili en...

Ída Margrét valin íþróttakona Gróttu

Ída Margrét Stefánsdóttir var á þriðjudagskvöld kjörin íþróttakona Gróttu árið 2025, er árlegt kjör á íþróttafólki félagsins fór fram. Ída Margrét hefur leikið með Gróttu frá árinu 2022 og myndar fyrirliðateymi liðsin með Katrínu Helgu Sigurbergsdóttur. Grótta lék í Olísdeildinni á...

Dagskráin: Einn leikur í Grill deild kvenna

Einn leikur er á dagskrá Grill 66 deildar kvenna í kvöld þegar Fjölnir fær Fram 2 í heimsókn í Fjölnishöllina. Leikurinn hefst klukkan 20. Mjótt er á munum í neðri hluta deildarinnar þar sem Fjölnir er í sjötta sæti með...
- Auglýsing -

HK endurheimti efsta sætið – FH nálgast Víking

HK komst á ný í efsta sæti Grill 66-deildar kvenna í kvöld. HK lagði Víking, 28:23, í Virkinu í Safamýri í upphafsleik 18. umferðar. HK er tveimur stigum á undan Gróttu sem mætir Val 2 á morgun í N1-höllinni....

Dagur Snær tekur við af Hilmari

Dagur Snær Steingrímsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá HK frá og með næsta tímabili. Hann tekur við starfa í júní. Hilmar Guðlaugsson, sem er þjálfari HK, tilkynnti fyrir nokkru að hann ætlaði sér að hætta þegar keppnistímabilið...

Sara Rún skrifaði undir samning sem gildir til 2029

Handknattleikskonan efnilega, Sara Rún Gísladóttir, hefur skrifað undir nýjan samning við Fram. Nýi samningurinn gildir til ársins 2029 segir í tilkynningu frá félaginu. Sara Rún hefur farið mikinn á tímabilinu með Fram í Grill-deildinni og er ein af markahæstu leikmönnum...
- Auglýsing -

Eva Hrund tekur við Víkingi af Sebastian

Eva Hrund Harðardóttir tekur við sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víkingi í vor þegar Sebastian Popovic Alexandersson þjálfari lætur af störfum eftir tveggja ára starf með liðið. Undir stjórn Sebastians hefur liðið tekið framförum og skilar hann því góðu...

Stórsigur FH í Úlfarsárdal

FH fór létt með Fram 2 í eina leik dagsins í Grill 66-deild kvenna í handknattleik, 27:18. Staðan í hálfleik í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal var 12:7, FH í vil. Síðari hálfleikur var einstefna af hálfu FH-liðsins sem færðist upp í...

Grill 66-kvenna: Grótta hafði betur í uppgjöri við HK um efsta sætið

Grótta hafði betur gegn HK í þriðja og síðasta uppgjöri liðanna á leiktíðinni í Grill 66-deild kvenna í handknattleik í kvöld, 31:27, í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi. Með sigrinum settist Grótta í efsta sæti deildarinnar með 30 stig eins og...
- Auglýsing -

Einn leikmaður og einn starfsmaður úrskurðaðir í leikbann

Á fundi aganefndar HSÍ á þriðjudag var einn leikmaður í Grill 66 deild kvenna og einn starfsmaður í 3. flokki kvenna úrskurðaðir í eins leiks bann. Sara Rún Gísladóttir leikmaður Fram 2 hlaut útilokun með skýrslu vegna sérstaklega hættulegrar aðgerðar...

FH skaust upp í fjórða sæti

Árni Stefán Guðjónsson þjálfari FH og leikmenn hans gátu farið með bros á vör heim úr Kaplakrika út í svalan en bjartan vetrardag eftir öruggan sigur á Fjölni, 27:20, í 16. umferð Grill 66-deildar kvenna í handknattleik. Með sigrinum...

HK lagði Aftureldingu – Karlotta innsiglaði sigur Gróttu

HK og Grótta eru áfram langefst í Grill 66-deild kvenna í handknattleik. HK lagði Aftureldingu örugglega í Kórnum í kvöld, 27:20, í 16. umferð. Grótta er tveimur stigum á eftir í öðru sæti. Víkingur er með 17 stig í...
- Auglýsing -

Tvær framlengja við Aftureldingu

Handknattleiksdeild Aftureldingar hefur haft í nógu að snúast undanfarna daga. Í gær var tilkynnt að Katrín Erla Kjartansdóttir hafi framlengt samning sinn til næstu tveggja ára og í morgun var tilkynnt að Ingibjörg Gróa Guðmundsdóttir hafi gert slíkt hið...

Grill 66 kvenna: HK er efst á nýjan leik

HK endurheimti efsta sæti Grill 66-deildar kvenna í gær eftir öruggan sigur á Fram 2, 35:26, í síðasta leik 15. umferðar deildarinnar. Leikið var í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal. Grótta hafði jafnað metin við HK á föstudagskvöld með öruggum sigri...

Grill 66 deild kvenna: Öruggir sigrar Gróttu og Fjölnis

Grótta vann auðveldan sigur á Aftureldingu, 33:22, í 15. umferð Grill 66 deildar kvenna í Myntkaup höllinni í Mosfellsbæ í kvöld. Fjölnir vann sömuleiðis öruggan sigur á Val 2, 36:29, í Fjölnishöllinni. Grótta er sem fyrr í öðru sæti deildarinnar...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -