- Auglýsing -
- Auglýsing -

Okkar fólk úti

- Auglýsing -

Áfram herðist róðurinn hjá Blæ og félögum í Leipzig

DHfK Leipzig mátti sín lítils gegn SG Flensburg-Handewitt þegar liðin áttust við í þýsku 1. Deildinni í handknattleik karla í Flensburg í kvöld. Eftir jafnan fyrri hálfleik vann Flensburg að lokum átta marka sigur, 36:28. Flensburg er þar með í...

Costa-bræður óstöðvandi í enn einum sigrinum

Orri Freyr Þorkelsson var á sínum stað í liði Sporting Lissabon þegar það vann sinn 21. sigur í jafnmörgum leikjum í portúgölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Bræðurnir Francisco og Martim Costa fóru á kostum í 36:30 útisigri á Águas Santas/Milaneza. Orri...

Einar Bragi illviðráðanlegur er Kristianstad styrkti stöðuna á toppnum

Einar Bragi Aðalsteinsson átti einu sinni sem áður góðan leik fyrir topplið IFK Kristianstad þegar liðið heimsótti Hammarby IF til Stokkhólms og vann með minnsta mun, 31:30, í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Einar Bragi hefur leikið afar vel fyrir Kristianstad...
- Auglýsing -

Jóhannes fór mikinn í dramatískum sigri Holstebro – endurkoma Donna

Jóhannes Berg Andrason átti einkar góðan leik fyrir TTH Holstebro þegar liðið vann kærkominn og dramatískan sigur á Mors-Thy Håndbold, 38:37, í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Sigurmark Holstebro, sem Arnór Atlason þjálfar, kom fjórum sekúndum fyrir leikslok. Jóhannes steig upp...

Íslendingaliðið á toppnum eftir sigur í grannaslag

Íslendingalið Alpla Hard HC Hard vann góðan sigur á nágrönnum sínum í Bregenz Handball, 35:30, í austurrísku 1. deildinni í handknattleik karla í dag. Leikið var í Bregenz. Tumi Steinn Rúnarsson skoraði fjögur mörk fyrir Alpla Hard og gaf tvær...

Svavar Ólafur og Sigurður Hjörtur fara til Barcelona

Handknattleiksdómararnir Svavar Ólafur Pétursson og Sigurður Hjörtur Þrastarson dæma í Palau Blaugrana í Barcelona næsta miðvikudag viðureign Barcelona og HC Eurofarm Pelister í síðustu umferð B-riðils Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn á miðvikudaginn verður önnur viðureignin á skömmum tíma sem þeir...
- Auglýsing -

Barcelona fyrst til að vinna Evrópumeistarana

Barcelona varð fyrst liða í kvöld til þess að vinna Evrópumeistara SC Magdeburg í riðlakeppni Meistaradeildar karla í handknattleik er liðin mættust í GETEC Arena í næstsíðustu umferð riðlakeppninnar. Lokatölur, 36:29, fyrir Viktor Gísla Hallgrímsson og liðsfélaga í spænska...

Skoða þurfti upptökur áður en Gummersbach gat fagnað sigri

Julian Köster skoraði sigurmark Gummersbach tíu sekúndum fyrir leikslok í mikilvægum sigri á Lemgo í toppbaráttu þýsku 1. deildarinnar á heimavelli í kvöld, 28:27. Hinsvegar mátti engu muna að gestirnir í Schwalbe Arena jöfnuðu metin á síðustu andartökum viðureigninnar....

Arnór vann í Íslendingaslag – góð frammistaða Arnars dugði ekki til

Arnór Viðarsson og liðsfélagar hans í HF Karlskrona unnu góðan heimasigur á Hammarby IF, hvar Gunnar Steinn Jónsson er í þjálfarateyminu, í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Arnar Birkir Hálfdánsson átti þá góðan leik fyrir Amo HK er liðið tapaði...
- Auglýsing -

Refirnir unnu toppslaginn og riðilinn – tap hjá Orra í Póllandi

Füchse Berlín tryggði sér sigur í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla með því að vinna sterkan útisigur á Aalborg Håndbold, 35:31 í 13. umferð riðilsins í gærkvöldi. Bæði lið voru þegar komin áfram í átta liða úrslit en...

Wolff ekki í hópnum hjá Alfreð

Andreas Wolff, markvörður THW Kiel og þýska landsliðsins, er ekki í nýjasta landsliðshópi Alfreðs Gíslasonar fyrir tvo vináttulandsleiki gegn Egyptalandi síðar í mánuðinum. Á því eru þó eðlilegar skýringar. Í tilkynningu frá þýska handknattleikssambandinu segir einfaldlega að Wolff muni gefa...

Myndskeið: Einar Bragi skoraði beint úr aukakasti

Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði glæsilegt mark beint úr aukakasti þegar leiktími fyrri hálfleiks var á enda runninn í viðureign IFK Kristianstad og MT Melsungen í Evrópudeildinni í handknattleik karla í gærkvöld. Með markinu jafnaði Einar Bragi metin, 16:16,...
- Auglýsing -

Elín Klara í úrvalsliðinu annan mánuðinn í röð

Annan mánuðinn í röð er Elín Klara Þorkelsdóttir, landsliðskona og leikmaður sænsku deildarmeistaranna IK Sävehof, í úrvalsliði mánaðarins. Í morgun var febrúarmánuður úrvalsdeildarinnar gerður upp og er Elín Klara í úrvalsliði mánaðarins. Hún var einnig í úrvalsliðinu fyrir janúar...

Myndskeið: Ótrúlegt sigurmark Þorsteins Leós

Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði ótrúlegt sigurmark fyrir FC Porto í Evrópudeildinni í handknattleik gegn Granollers, 34:33. Markið skoraði hann úr hægra horni á síðustu sekúndu leiksins eins og sjá má hér fyrir neðan. ...

Molakaffi: Tumi, Tryggvi, Hannes, Viktor

Tumi Steinn Rúnarsson skoraði eitt mark og átti þrjár stoðsendingar í jafntefli Alpla Hard við Graz á heimavelli í gær í upphafsleik 16. umferðar austurrísku 1. deildarinnar í handknattleik. Graz er í næst neðsta sæti en Alpla Hard er...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -