Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði sex mörk, og var markahæstur þegar Porto lagði Granollers öðru sinni á einni viku í 16-liða úrslitum riðlakeppni Evrópudeildar karla í handknattleik, 34:33, í hnífjöfnum leik í Porto í kvöld. Sjötta og síðasta markið skoraði...
Einar Bragi Aðalsteinsson og liðsfélagar í IFK Kristianstad halda áfram í vonina um sæti í fyrstu umferð útsláttarkeppni Evrópudeildar karla í handknattleik eftir að þeir lögðu þýska liðið MT Melsungen, 31:30, í Kristianstad Arena í kvöld. IFK á eftir...
Elliði Snær Viðarsson er í úrvalsliði 23. umferðar þýsku 1. deildarinnar eftir að hafa átt sannkallaðan stórleik í sögulegum sigri VfL Gummersbach á THW Kiel á útivelli á sunnudag. Var það fyrsti sigur Gummersbach á heimavelli Kiel síðan í...
Handknattleiksþjálfarinn Guðmundur Þórður Guðmundsson er orðaður við þjálfarastarfið hjá karlaliði HC Kriens-Luzern í Sviss. Guðmundur var síðast þjálfari karlaliðs Fredericia HK í Danmörku en var látinn taka pokann sinn í lok september á síðasta ári.
Staðarblaðið Luzerner Zeitung greinir frá...
Elvar Ásgeirsson leikmaður Ribe-Esbjerg og íslenska landsliðsins er í liði 22. umferðar dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik eftir stórleik sinn með Ribe-Esbjerg í sigrinum á TTH Holstebro síðasta fimmtudag, 39:31, í Holstebro.
Elvar skaut öflugum leikmönnum ref fyrir rass með frammistöðu...
Ekki er útilokað að handknattleiksmaðurinn Kristján Örn Kristjánsson, Donni, leiki á ný með danska úrvalsdeildarliðinu Skanderborg AGF annað kvöld gegn Elverum í Evrópudeildinni. Donni gekkst undir aðgerð vegna kviðslits í janúar. Endurhæfing hefur gengið framar vonum eftir því sem...
Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæma viðureign ungverska liðsins Pick Szeged og GOG frá Danmörku í 13. og næstsíðustu umferð Meistaradeildar Evrópu í karlaflokki í handknattleik í Pick Arena í Szeged á fimmtudagskvöld. Bæði lið eru komin áfram...
Orri Freyr Þorkelsson var markahæstur leikmanna Sporting með átta mörk í 13 marka sigri meistaranna á Vitória, 40:27, í portúgölsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Fimm marka sinna skoraði Orri Freyr úr vítaköstum.
Sporting er með fullt hús stiga...
Afar góður leikur Hauks Þrastarsonar nægði ekki Rhein-Neckar Löwen til þess að vinna meistara Füchse Berlin í viðureign liðanna í Berlín í dag, lokatölur, 35:28. Haukur skoraði sex mörk og gaf 11 stoðsendingar sem tryggir að hann er áfram...
Sigvaldi Björn Guðjónsson landsliðsmaður í handknattleik er orðaður við þýsku liðin Hannover-Burgdorf og Gummersbach í SportBild í dag. Sigvaldi Björn er samningsbundinn norska liðinu til ársins 2030.
Hannover-Burgdorf mun vera á höttunum eftir hægri hornamanni til þess að fylla skarð...
Dana Björg Guðmundsdóttir sem leikur fyrir Volda og landsliðskona í handknattleik skoraði fimm mörk í góðum sigri Volda á Åsane, 35:32, í næstefstu deild norska handknattleiksins í gær. Leikið var á heimavelli Åsane-liðsins sem er í fjórða sæti. Volda...
Elliði Snær Viðarsson átti stórleik þegar Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, gerði sér lítið fyrir og vann stórsigur á THW Kiel, 34:26, á heimavelli Kiel í gærkvöld. Þetta er fyrsti sigur Gummersbach á THW Kiel síðan í september...
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði sex mörk, tvö þeirra úr vítaköstum, þegar Kadetten Schaffhausen lagði TSV St. Otmar St. Gallen, 33:30, á heimavelli í 23. umferð A-deildarinnar í Sviss í gær. Kadetten Schaffhausen er langefst í deildinni, tíu stigum á...
Íslendingalið HSG Blomberg-Lippe vann torsóttan og dramatískan útisigur á HSG Bensheim/Auerbach, 29:28, í þýsku 1. deildinni í handknattleik kvenna í kvöld. Íslensku landsliðskonurnar Andrea Jacobsen, Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir létu allar að sér kveða.
Díana Dögg skoraði...
Stiven Tobar Valencia var markahæstur þegar lið hans SL Benfica heimsótti ABC Braga og vann sterkan sigur, 35:30, í portúgölsku úrvalsdeildinni í dag.
Stiven skoraði sjö mörk en það gerði einn liðsfélagi hans einnig og sömuleiðis tveir í liði Braga.
Benfica...