- Auglýsing -
- Auglýsing -

Okkar fólk úti

- Auglýsing -

Einar Bragi og félagar eru áfram í efsta sæti

Einar Bragi Aðalsteinsson og félagar í IFK Kristianstad sóttu tvö stig í greipar IK Sävehof í gær, 26:24, þegar þráðurinn var tekinn upp í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik að loknum Evrópumótinu. Einar Bragi, sem skrifaði nýverið undir nýjan tveggja...

Óðinn Þór fékk frí frá fyrsta leik eftir EM

Óðinn Þór Ríkharðsson landsliðsmaður í handknattleik fékk frí í gær til þessað kasta mæðinni eftir langa og stranga törn þegar Kadetten Schaffhausen mætti Handball Stäfa og vann örugglega, 44:31, á heimavelli í svissnesku A-deildinni í handknattleik.  Kadetten er efst í...

Sigurstund í suðri

Íslendingaliðið Blomberg-Lippe fór ekki erindisleysu til suðurhluta Þýskalands í kvöld til að sækja Sport-Union Neckarsulm heim í 15. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik. Leikmenn liðsins fóru með tvö stig í pokahorninu heim eftir tveggja marka sigur, 29:27, eftir...
- Auglýsing -

Tapað stig og toppsætið þar með úr sögunni í bili

Benedikt Gunnar Óskarsson og Sigvaldi Björn Guðjónsson skoruðu eitt mark hvor fyrir Kolstad þegar liðið gerði jafntefli við Follo HK, 29:29, í norsku úrvalsdeildinni í kvöld. Leikið var á heimavelli Follo, Stil Arena. Benedikt Gunnar átti einnig eina stoðsendingu. Sigurjón...

„Þegar útlendingur gerir eitthvað svipað fagna allir“

Zlatko Dalic, landsliðsþjálfari karlaliðs Króatíu í knattspyrnu, furðar sig á því að landar sínir séu í stórum stíl sammála gagnrýni Dags Sigurðssonar, þjálfara karlaliðs Króatíu í handknattleik, í garð skipulags Handknattleikssambands Evrópu á leikjadagskrá á Evrópumótinu. Dalic hafi sjálfur...

Dana Björg til eins af stórliðum Noregs

Dana Björg Guðmundsdóttir landsliðskona í handknattleik gengur til liðs við norska úrvalsdeildarliðið Larvik í sumar. Larvik er um þessar mundir eitt af þremur sterkustu handknattleiksliðum Noregs í kvennaflokki, með 25 stig eftir 16 leiki í deildinni, þremur stigum á...
- Auglýsing -

Molakaffi: Dana, Katla, Jón, Birta

Dana Björg Guðmundsdóttir skoraði sjö mörk, þar af eitt úr vítakasti, þegar Volda lagði Stavanger naumlega, 24:23, á heimavelli í næstefstu deild norska handknattleiksins. Landsliðskonan skoraði m.a. sigurmark leiksins 50 sekúndum fyrir leikslok. Volda situr í 5. sæti deildarinnar með...

Fjögurra marka sigur og áfram í toppbaráttu

Landsliðskonurnar þrjár hjá Blomberg-Lippe fögnuðu góðum sigri á heimavelli í kvöld í 16. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik þegar liðið lagði BSV Sachsen Zwickau, 32:28, eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálfleik, 18:13. Blomberg-Lippe er áfram...

Alfreð skákaði Degi og Þjóðverjar í úrslit

Þýskaland undir stjórn Alfreðs Gíslasonar tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum Evrópumóts karla með sigri á lærisveinum Dags Sigurðssonar í Króatíu, 31:28, í Jyske Bank Boxen í Herning í Danmörku. Þýskaland mætir annað hvort Íslandi eða Danmörku í úrslitaleiknum...
- Auglýsing -

Stórleikur Elínar Klöru nægði ekki í grannaslag

Þrátt fyrir stórleik Elínar Klöru Þorkelsdóttur í gærkvöld varð IK Sävehof að sætta sig við annað tapið á leiktíðinni í sænsku úrvalsdeildinni er grannliðið Önnereds kom í heimsókn til Partille, 25:24. Elín Klara skoraði sjö mörk, þar af þrjú...

Engin bönd halda Kötlu Maríu og liðsfélögum

Katla María Magnúsdóttir og liðsfélagar hennar í Holstebro Håndbold halda sínu striki í dönsku B-deildinni. Liðið er áfram langefst á toppi deildarinnar eftir 34:21 stórsigur á Roskilde Håndbold á þriðjudagskvöld. Holstebro er með 26 stig eftir 14 leiki, sex stigum...

Dagur og Króatar eru brjálaðir út í EHF

Króatískir fjölmiðlar fara nú mikinn vegna ósættis við skipulag Evrópumóts karla sem lýkur um helgina í Jyske Bank Boxen í Herning. Gol.hr greinir frá því að Dagur Sigurðsson þjálfari sé það ósáttur að hann hyggist sniðganga fyrirhugaðan blaðamannafund á...
- Auglýsing -

Aron krækti í brons – besti árangurinn í 18 ár

Kúveit, undir handleiðslu Arons Kristjánssonar, tryggði sér í dag bronsverðlaun á Asíumóti karla með því að leggja Japan að velli, 33:32, í bronsleiknum á heimavelli liðsins í Kúveit. Er þetta besti árangur Kúveit á mótinu í 18 ár. Kúveit vann...

Hannes lætur af störfum í sumar

Austurríska handknattleiksfélagið Alpla HC Hard hefur ákveðið að framlengja ekki samning þjálfarans Hannesar Jóns Jónssonar og lætur hann því af störfum að loknu yfirstandandi tímabili í sumar. Hannes Jón hefur þjálfað Alpla HC Hard frá sumrinu 2021 með góðum árangri....

Lykilmaður Dags úr leik

Zvonimir Srna, einn af lykilmönnum króatíska karlalandsliðsins, tekur ekki frekari þátt í Evrópumóti karla eftir að hafa meiðst í 29:25 sigri Króatíu á Slóveníu í milliriðli 2 í Malmö í gær. Vinstri skyttan er í stóru hlutverki hjá Degi Sigurðssyni...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -