- Auglýsing -
- Auglýsing -

Okkar fólk úti

- Auglýsing -

Elín Klara og liðsfélagar með þriggja stiga forskot

Elín Klara Þorkelsdóttir og liðsfélagar í IK Sävehof hafa þriggja stiga forskot á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik eftir 17 umferðir með 30 stig. IK Sävehof vann Höörs HK H 65 með 11 marka mun á heimavelli í gær,...

Molakaffi: Einar, Birgir, Arnar, Dagur, Sveinn, Jón

Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði fimm mörk fyrir IFK Kristianastad þegar liðið vann Malmö, 33:29, á útivelli í viðureign tveggja efstu liða sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gærkvöld. Eftir sigurinn hefur Kristianstad fimm stiga forskot í efsta sæti deildarinnar. Malmö...

Bjarki Már skoraði fjögur mörk í fimmtánda sigrinum

Bjarki Már Elísson skoraði fjögur mörk, eitt þeirra úr vítakasti, í fimmtánda sigurleik One Veszprém í ungversku 1. deildinni í handknattleik á heimavelli. One Veszprém lagði þá FTC-Green Collect (Ferencváros), 43:29, eftir að hafa verið sex mörkum yfir í...
- Auglýsing -

Palicka hæstánægður með að gerast lærisveinn Rúnars – fer til Berlínar í sumar

Þýska félagið HSG Wetzlar hefur tilkynnt formlega um komu sænska markvarðarins Andreas Palicka frá norska félaginu Kolstad. Palicka fékk samningi sínum í Noregi rift og samdi út yfirstandandi tímabil hjá Wetzlar, þar sem Rúnar Sigtryggsson er þjálfari. Um leið...

Stig í súginn hjá Íslendingaliðinu

Íslendingalið TTH Holstebro mátti gera sér eitt stig að góðu gegn Fredericia er liðin skildu jöfn, 29:29, í dramatískum leik í dönsku úrvalsdeild karla í Holstebro í kvöld. Holstebro virtist eiga sigurinn vísan en glutraði niður forskoti sínu undir...

Elliði Snær í liði umferðarinnar

Elliði Snær Viðarsson er í úrvalsliði 20. umferðar þýsku 1. deildarinnar eftir að hafa staðið sig afar vel í sigri VfL Gummersbach á SG Flensburg-Handewitt á þriðjudagskvöld. Elliði Snær skoraði átta mörk úr 11 skotum er Gummersbach vann 33:26. Er...
- Auglýsing -

Ísak fór hamförum í öruggum sigri

Ísak Steinsson átti sannkallaðan stórleik í marki Drammen þegar liðið heimsótti Fjellhammer og vann öruggan sigur, 30:24, í norsku úrvalsdeildinni í kvöld. Ísak gerði sér lítið fyrir og varði 18 skot, þar af eitt vítakast. Var hann þannig með 43%...

Berta og stöllur töpuðu mikilvægum leik

Berta Rut Harðardóttir og liðsfélagar hennar í Kristianstad HK töpuðu fyrir IF Hallby, 34:29, í mikilvægum leik í baráttunni um sæti í sænsku úrslitakeppninni í úrvalsdeildinni í Hallby í gærkvöldi. Kristianstad er í áttunda sæti, síðasta sætinu inn í úrslitakeppnina,...

Monsi illviðráðanlegur í Norður-Makedóníu

Úlfar Páll Monsi Þórðarson átti frábæran leik fyrir RK Alkaloid þegar liðið vann einkar öruggan sigur á Eurofarm Pelister 2, 36:22, á útivelli í efstu deild Norður-Makedóníu í gærkvöldi. Monsi skoraði átta mörk úr jafnmörgum skotum og var jafn markahæstur...
- Auglýsing -

Komnir inn á sigurbraut á nýjan leik

Eftir fyrsta tapið í 10 mánuði á síðasta laugardaginn komst Kadetten Schaffhausen inn á sigurbraut í A-deildinni í Sviss á ný í gærkvöldi. Kadetten Schaffhausen vann HC Kriens-Luzern í æsilega spennandi leik á heimavelli síðarnefnda liðsins, 27:26. Óðinn Þór Ríkharðsson...

Gísli, Ómar og félagar halda uppteknum hætti

SC Magdeburg heldur sigurgöngu sinni áfram í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld þegar liðið hóf leik á ný eftir EM-hlé. Magdeburg, með Gísla Þorgeir Kristjánsson og Ómar Inga Magnússon í broddi fylkingar, lagði spútniklið Lemgo, 36:32, á...

Elvar tryggði Ribe-Esbjerg annað stigi gegn GOG

Elvar Ásgeirsson tryggði Ribe-Esbjerg annað stigið gegn GOG í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. Mosfellingurinn jafnaði metin, 30:30, þegar rétt innan við mínúta var til leiksloka. Þrátt fyrir ákafa sókn GOG þá lánaðist liðinu ekki að skora sigurmarkið...
- Auglýsing -

Íslendingar á sigurbraut í norsku úrvalsdeildinni

Tryggvi Þórisson og samherjar í Elverum halda efsta sæti norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla eftir fjögurra marka sigur á Bergen Håndball, 33:29, á heimavelli í kvöld þegar átjánda umferð af 26 fór fram. Elverum er tveimur stigum á undan...

Svavar og Sigurður dæma í Meistaradeild Evrópu – tvö íslensk pör í keppninni

Handknattleiksdómararnir Svavar Ólafur Pétursson og Sigurður Hjörtur Þrastarson dæma saman í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu í handknattleik karla í næstu viku. Þeir hafa verið settir á viðureign Aalborg Håndbold og Kolstad Håndball í 11. umferð A-riðils Meistaradeildar í...

Ísak og Guðmundur stukku upp í 8. sæti

Íslendingaliðið TMS Ringsted rauk upp í áttunda sæti dönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld eftir öruggan sigur á SønderjyskE, 30:25, á útivelli í 20. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Fyrir leikinn var TMS Ringsted í 12. sæti. Ísak Gústafsson skoraði þrjú mörk...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -