IK Sävehof, sem Elín Klara Þorkelsdóttir leikur með, er komið með fimm stiga forskot í efsta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik kvenna eftir níu marka sigur á Kristianstad HK, 36:27, í Kristianstad Arena í kvöld í 18. umferð af...
Íslendingaliðið Blomberg-Lippe vann stórsigur, svo ekki sé dýpra í árinni tekið í kvöld, þegar liðið lagði Göppingen, 40:22, í 16. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik. Staðan var 17:7 eftir fyrri hálfleik.Blomberg-Lippe er í öðru sæti deildarinnar með 28...
Viktor Gísli Hallgrímsson og liðsfélagar í Barcelona eru öruggir um sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik eftir afar öruggan sigur á ungverska liðinu Pick Szeged, 35:27, í Pick Arena í Szeged í kvöld í 11. umferð...
Tumi Steinn Rúnarsson og Tryggvi Garðar Jónsson skoruðu tvö mörk hvor þegar Alpla Hard tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar í Austurríki í gærkvöld. Þriðji Íslendingurinn, Hannes Jón Jónsson, er þjálfari Alpla Hard.
Alpla Hard lagði smáliðið Perchtoldsdorf, 36:23,...
Reynir Þór Stefánsson var markahæstur leikmanna MT Melsungen er þeir unnu harðsóttar sigur á sænska liðinu IFK Kristianstad, 33:29, í Rothenbach Halle í Kassel í kvöld í fyrstu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik. Reynir Þór skoraði sjö mörk en...
Elverum vann öruggan sigur á spænska liðinu Granollers, 37:28, í fyrstu umferð 2. riðils 16-liða úrslita Evrópudeildar karla í kvöld. Tryggvi Þórisson var að vanda með Elverum og skoraði eitt mark en var fyrst og síðast fastur fyrir í...
Stiven Tobar Valencia og samherjar í Benfica hófu keppni í 16-liða úrslitum riðlakeppni Evrópudeildarinnar af krafti í kvöld. Þeir lögðu HC Vardar, 40:35, í Lissabon. Stiven Tobar var næstmarkahæstur leikmanna Benfica með sex mörk.
Átta marka forskot í hálfleik
Benfica-piltar voru...
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði níu mörk í kvöld þegar Kadetten Schaffhausen vann baráttusigur á danska liðinu Fredericia, 32:30, í fyrstu umferð af fjórum í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í handknattleik í kvöld. Leikið var í Middelfart Sparekasse Arena. Ólafur Örn...
Íslensku þjálfararnir þrír sem starfa í þýsku 1. deildinni, sterkustu deild heims, fengu allir til sín nýja leikmenn fyrir síðari hluta tímabilsins áður en vetrar félagaskiptaglugganum var lokað í gær.
Þegar hefur verið greint frá hvalreka á fjörur HSG Wetzlar,...
Slakur fyrri hálfleikur kom leikmönnum Bergischer HC í koll í gærkvöld þegar þeir heimsóttu Eisenach í Werner-Assmann Halle í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Leikmenn voru átta mörkum undir í hálfleik, 21:13, og tókst ekki að bíta úr nálinni...
Volda virðist jafnt og þétt vera að heltast úr lestinni í toppbaráttu næstefstu deildar kvenna í Noregi. Liðið tapaði í dag fyrir Utleira á heimavelli, 32:27, og situr í 6. sæti, 10 stigum á eftir Flint Tønsberg sem trónir...
Sá fáheyrði atburður átti sér stað í kvöld að þýska handknattleiksliðið SC Magdeburg tapaði viðureign í þýsku 1. deildinni í handknattleik er það sótti THW Kiel heim í 21. umferð. Lokatölur í troðfullri Wunderino-Arena Kiel í Kiel voru, 31:29,...
Elmar Erlingsson skoraði tvö mörk og gaf þrjár stoðsendingar þegar lið hans, Nordhorn-Lingen, tapaði á heimavelli fyrir Eintracht Hagen, 28:21, í næstefstu deild þýska handknattleiksins í dag. Mikill áhugi var fyrir leiknum en liðlega þrjú þúsund áhorfendur lögðu leið...
Guðmundur Bragi Ástþórsson og Ísak Gústafsson fara heim með silfurverðlaun frá bikarhelgi danska handknattleiksins eftir að lið þeirra, TMS Ringsted, tapaði fyrir Aalborg Håndbold, 34:24, í úrslitaleik í Jyske Bank Boxen í Herning í dag.
Guðmundur Bragi skoraði eitt mark...
Stórleikur Viggós Kristjánssonar dugði HC Erlangen ekki í dag þegar liðið tapaði með sex marka mun í heimsókn til Lemgo í Lipperlandhalle, 27:21. Seltirningurinn skoraði 11 mörk, þar af átta úr vítaköstum, og var markahæsti leikmaður Erlangen sem situr...