FH lagði Fram, 28:26, í hörkuleik í fyrstu viðureign liðanna í átta liða úrslitum Olísdeildar karla í handknattleik. Leikurinn fór fram í Kaplakrika. Næst mætast liðin í Lambhagahöll Fram á mánudagskvöld klukkan 19.30. Framarar verða að vinna þá viðureign...
Síðari tveir leikir fyrstu umferðar 8-liða úrslita Olísdeildar karla í handknattleik fara fram í kvöld. Í gær hófst úrslitakeppni Olísdeildar karla með viðureignum ÍBV og KA og Vals og HK.
Hægt er að fylgjast með leikjum kvöldsins gegnum HBStatz hér...
Jón Þórarinn Þorsteinsson átti sannkallaðan stórleik í marki FH þegar liðið vann góðan sigur á Fram, 28:26, í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum Olísdeildarinnar í Kaplakrika í kvöld. FH er 1:0 yfir í einvíginu, en vinna þarf...
Haukar unnu öruggan sigur á Aftureldingu, 34:26, í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum Olísdeildar karla um Íslandsmeistaratitilinn í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í kvöld. Haukar eru því komnir í 1:0 í einvíginu.
Liðin mætast næst í Myntkaup höllinni...
Igor Chiseliov, leikmaður Þórs á Akureyri, mun ekki spila áfram með liðinu á næsta tímabil. Samningur hans rennur út í sumar og verður ekki endurnýjaður.
Jason Orri Geirsson, meðstjórnandi í stjórn handknattleiksdeildar Þórs, skýrði frá þessu í samtali við Handkastið.
Chiseliov...
HK hefur tryggt sér annan leikmann fyrir næstu leiktíð í Olísdeild karla. Í morgun tilkynnti félagið að Tómas Bragi Lorriaux Starrason leikmaður Gróttu hefði ákveðið að söðla um og ganga til liðs við Kópavogsliðið. Fyrr í vikunni greindi HK...
Deildarmeistarar Vals náðu að vinna HK eftir framlengingu í fyrstu viðureign liðanna í átta liða úrslitum Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld, 42:38. Staðan var jöfn, 31:31, eftir venjulegan leiktíma. Valur skoraði tvö síðustu mörkin og kreisti út framlengingu....
Úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik, 8-liða úrslit, hófst í kvöld. Leikmenn ÍBV og KA ríðu á vaðið í Vestmannaeyjum klukkan 18. Hálfum öðrum tíma síðar mættust Valur og HK í N1-höllinni á Hlíðarenda.
Hægt var að fylgjast með leikjum kvöldsins...
Eftir tvær framlengingar vann KA lið ÍBV með eins marks mun í fyrsta leik úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik í Vestmannaeyjum í kvöld, 34:33. Eyjamenn náðu tveimur sóknum á síðustu mínútu síðari framlengingarinnar til þess að jafna metin og...
Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld fóru sérfræðingar þáttarins, Einar Ingi Hrafnsson og Rakel Dögg Bragadóttir, ítarlega yfir úrslitakeppni Olísdeildar karla þar sem barist verður til þrautar um Íslandsmeistaratitilinn.
Í fyrstu umferð úrslitakeppninnar þarf aðeins tvo sigra til þess að...
„Tilfinningin er mjög góð. Við erum mjög ánægðir með vegferðina sem við erum á. Strákarnir eiga mikið hrós skilið fyrir vinnusemina og eljuna sem þeir hafa lagt í verkefnið síðastliðin tvö ár,“ segir Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari karlaliðs Víkings Reykjavíkur,...
Jakob Martin Ásgeirsson, leikmaður FH, hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við uppeldisfélag sitt og er nú samningsbundinn því til sumarsins 2029.
Jakob Martin, sem er 27 ára vinstri hornamaður, hefur alla tíð leikið með FH og er á...
Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld var úrvalslið deildarkeppni Olísdeildar karla valið. Bjarni Ófeigur Valdimarsson, vinstri skytta KA, var þar útnefndur besti leikmaður tímabilsins 2025/2026.
Bjarni Ófeigur átti magnað tímabil í deildinni og var einfaldlega óstöðvandi í sóknarleik KA-manna þar...
Útlit er fyrir að forráðamenn handknattleiksliðs Selfoss verði að ráða nýjan þjálfara fyrir karlalið sitt. Carlos Martin Santos, þjálfari Selfossliðsins undanfarin ár, er samkvæmt frétt sænska dagblaðsins Aftonbladet, að taka við þjálfun sænska liðsins HK Aranäs. Liðið leikur nú...
Tandri Már Konráðsson og Sverrir Eyjólfsson taka nú þegar við þjálfun og stjórn karlaliðs Stjörnunnar í handknattleik en til stóð að þeir tækju við stjórnvölunum í sumar. Hrannar Guðmundsson hefur þar með látið af störfum eftir því sem fram...